Á morgun verður heimildarmyndin Voru allir hér? sýnd í Sambíóunum á Akureyri. Myndin segir 100 ára sögu Laugaskóla, en skólinn fagnaði aldarafmæli sínu í október síðast liðnum. Leikstjóri myndarinnar er Ottó Gunnarsson, kvikmyndagerðarmaður frá Efri-Hólum við Kópasker og fyrrverandi nemandi skólans. Ferill Ottós sem nemanda við Laugaskóla var um margt óvenjulegur og lengri en tíðkast hjá flestum sem sækja framhaldsskóla í dag. Í Sunnudagsviðtali Húsavík.com ræðir Örlygur Hnefilll við Ottó um kvikmyndagerðina og lífið á Laugum.
Ottó er í dag búsettur í Mosfellsbæ ásamt eiginkonu sinni, fjórum börnum, tveimur köttum og einum hundi.
„Ég er sveitalubbi sem ólst upp í Núpasveit. Þú getur tekið strákinn úr sveitinni, en þú tekur aldrei sveitina úr stráknum,“ segir hann og glottir.
Myndin Voru allir hér? hefur vakið mikla athygli. Hún var frumsýnd á 100 ára afmælishátíð skólans á síðasta ári, en færri komust að en vildu. Í kjölfarið var brugðið á það ráð að halda tvær sýningar í Bíó Paradís í Reykjavík og nú einnig sýningu í Sambíóunum á Akureyri.
Ottó lýsir frumsýningunni á Laugum sem einstakri upplifun. „Ég stóð hálf meir á sviðinu inn í Þróttó á Laugum þann 25. október 2025 og horfði yfir troðfullan sal áhorfenda sem voru að fara að horfa á frumsýningu heimildarmyndar minnar. Það var eitthvað fallegt og ljóðrænt við það að einmitt á þessum punkti, uppi á loftinu í Þróttó, steig ég mín fyrstu spor í kvikmyndagerð fyrir meira en aldarfjórðungi síðan.“ Á meðan Ottó dvaldi á Laugum fékkst hann mikið við gerð stuttmynda og þá gerði hann einnig eftirminnilega heimildarmynd um busavígslu skólans.
Þegar gamli kennari hans við Laugaskóla, Arnór Benónýsson, hafði samband og bar það undir hann að gera heimildarmynd um gamla skólann sinn, var Ottó ekki lengi að svara játandi. „Mig grunaði þó ekki hversu mikið ferðalag þetta ferli yrði og tel að Arnór hafi ekki heldur grunað að verkefnið myndi enda sem mynd í fullri lengd.“
Að gera heimildarmynd um 100 ára sögu skólastofnunar er krefjandi verkefni. „Hvað á að koma fram, hverju á að sleppa og hvernig á að segja söguna?“ Þá þurfi einnig gríðarlegt magn af myndefni til að styðja frásagnirnar og lífga myndina. „Ég lagði mikla vinnu í að sanka að mér myndefni í alls kyns formi og óhætt er að segja að veiðin hafi verið góð. Alls tókst okkur að safna saman um 2.800 ljósmyndum úr sögu skólans og 120 klukkustundum af lifandi myndefni. Þá voru tekin 26 viðtöl sem skiluðu um 12 klukkustundum af nothæfu viðtalsefni. Öllu þessu þurfti svo að púsla saman niður í 77 mínútur, sem er eiginlega alveg galið,“ segir hann.
Ottó leggur ríka áherslu á að myndin hafi ekki verið unnin af honum einum. Hann smalaði saman öflugum hópi fagfólks úr kvikmyndageiranum til að vinna verkefnið með sér, þar á meðal Búa Baldvinssyni framleiðanda, Daníel Bjarnasyni klippara, Viliusi Petrikas tökumanni, Örlygi Hnefli Örlygssyni og fleiri. „Ég kann þeim öllum ómældar þakkir fyrir þátttöku þeirra í þessu stóra verkefni,“ segir hann.
„Þessi skóli og allt það fólk sem ég kynntist þar stendur mér mjög nærri og það var mér hjartans mál að skila þessu almennilega frá mér. Ég held ég sé bara nokkuð sáttur við útkomuna. Laugar lengi lifi.“ Spurður hvort „allir“ hafi verið í Framhaldsskólanum á Laugum, með vísun í nafn myndarinnar, þá brosir Ottó. „Það voru eiginlega allir hér, en samt ekkert svo margir.“
Ottó hóf sjálfur nám við skólann árið 1997. Hann átti þó eftir tvo áfanga þegar hann fór frá Laugum. „Það var svo árið 2018 sem ég var á Laugum að kenna öráfanga í kvikmyndagerð á þemadögum skólans og þegar ég fór að sækja lykla að herberginu hitti ég Hall B. Reynisson áfangastjóra. Hallur sagði mér að vegna breytinga í skólaumhverfi væri nú hægt að útskrifa mig öllum þessum árum síðar. Annað hvort gæti ég útskrifast af félagsfræðibraut, og þyrfti þá að koma og taka einn þýskuáfanga, eða ég gæti útskrifast af kjörsviðsbraut með einingum mínum úr kvikmyndanámi og þá þyrfti ég ekki að gera annað en að mæta með hvítan koll á mína eigin útskrift. Ég valdi seinni kostinn. Sehr gut!,“ segir Ottó og hlær.
Tónlist gegnir veigamiklu hlutverki í myndinni, enda hafa Laugar skapað sér orð sem uppeldisstöð tónlistarfólks í gegnum áratugina. Meðal fyrrum nemenda eru Mugison, Þráinn Árni úr Skálmöld, kraftsöngvarinn Stefán Jakobsson, Birgitta Haukdal og fleiri. Ottó leitaði einmitt til Stefáns Jakobssonar um að semja titillag myndarinnar. Þá var fenginn kór til að taka upp skólasöng Laugamanna, sem ekki hafði verið gert áður. Auk þess samdi Einar Sv. Tryggvason fallega frumsamda tónlist fyrir myndina, sem heyra má undir sögum frá Laugum gegnum myndina.
Myndin er 77 mínútur að lengd og verður sýnd í Sambíóunum á Akureyri á morgun, mánudaginn 2. febrúar, klukkan 18:00. Hægt verður að kaupa miða á vef Sambíóanna.

