100 prósent ánægja með Barnaból á Skagaströnd: „Sem sveitarstjóri fyllist ég stolti“

Leikskólinn Barnaból á Skagaströnd skilar framúrskarandi árangri samkvæmt nýjustu foreldrakönnun, en þar mælist ánægja foreldra 100 prósent. Þetta er í þriðja sinn síðan 2022 sem ánægja mælist svo há. Alexandra Jóhannesdóttir, sveitarstjóri á Skagaströnd, segir árangurinn bera vitni um öflugt starf innan leikskólans. „Leikskólinn Barnaból heldur áfram að skara fram úr og skilar ár eftir ár framúrskarandi niðurstöðum í foreldrakönnunum, vel yfir landsmeðaltali,“ segir hún.

Hún bendir á að niðurstöðurnar séu ekki tilviljun, heldur endurspegli fagmennsku og metnað starfsfólksins. „Þessi árangur er engin tilviljun heldur endurspeglar fagmennsku, metnað og einlægan vilja til að mæta hverju barni á eigin forsendum. Betur verður varla gert,“ segir Alexandra.

Sveitarstjórinn segir jafnframt að árangurinn hafi bæði faglega og persónulega þýðingu fyrir sig. „Sem sveitarstjóri fyllist ég stolti yfir því öfluga starfi sem þar fer fram. Sem foreldri upplifi ég þetta á hverjum degi, þegar barnið mitt hleypur inn í leikskólann brosandi og fullt eftirvæntingar,“ segir hún.

Leikskólinn Barnaból starfar eftir Hjallastefnunni og hefur lengi verið þekktur fyrir markvisst uppeldisstarf og sterka áherslu á vellíðan barna.

„Innilegar hamingjuóskir, kæra starfsfólk, þessi árangur er ykkar verk. Við erum þakklát fyrir ykkur og það ómetanlega starf sem þið vinnið á hverjum degi,“ bætir Alexandra við.