Áki Hauksson framkvæmdastjóri Víkurrafs skipar 6. sæti á M-Lista Samfélagsins í Norðurþingi við kosningar í vor. Þetta kemur fram í tilkynningu frá framboðinu í dag, en þar segir að Áki sé límið og vítamínið í Lista Samfélagsins. Áki hafði tilkynnt í byrjun febrúar að hann hyggðist ekki sækjast eftir að leiða listann í komandi kosningum, en hann hefur lengi unnið að málefnum sveitarfélagsins og verið áberandi stjórnmálaleiðtogi á þessum kjörtímabili.
Fréttatilkynning frá M-Lista Samfélagsins í heild:
Áki Hauksson skipar 6. sæti M-Lista Samfélagsins
Áki Hauksson framkvæmdastjóri Víkurrafs ehf. skipar 6. sæti á M – Lista Samfélagsins í Norðurþingi í komandi sveitarstjórnarkosningum í vor.
Áki er límið og vítamínið í Lista Samfélagsins. Hann var kjörinn sveitarstjórnarfulltrúi í kosningum 2022 og hefur s.l. 4 ár sinnt því starfi með sóma. Hann er reyndur í sveitarstjórnarmálum og hefur sýnt gott aðhald þar sem því verður við komið og jafnframt lagst þétt á árarnar þar sem þörf hefur verið á. Málefni sveitarfélagsins í hinum dreifðu byggðum hafa vorið honum hugleikinn, enda hefur starfað mikið þar og þekkir þar fólk og fyrirtæki. Hann hefur átt góð samskipti við fólk og fyrirtæki á Kópaskeri og Raufarhöfn um áraskeið.
Hann ákvað að stíga skref til hliðar, enda hlaðinn öðrum góðum verkefnum s.s. framkvæmdastjórn Víkurrafs ehf., en það fyrirtæki hefur verið í örum vexti s.l. ár.
Aðspurður segist Áki hafa áhyggjur af fjármálum og rekstri sveitarfélagsins, útgjöld hafa vaxið s.l. ár og einnig skattar og gjöld, sem leggjast á fyrirtæki og fjölskyldur í sveitarfélaginu.
Það er fengu fyrir Lista Samfélagsins og íbúa og fyrirtæki í Norðurþingi að njóta áfram krafta og áhuga Áka. Reynsla hans úr atvinnulífinu hefur nýst vel og mun gera áfram.
Áki er giftur Örnu Þórarinsdóttur félagsliða Framhaldsskólanum á Húsavík. Þau eiga 3 uppkomin börn og afastrák – sem kallar á meiri tíma, athygli og leik með afa.

