Akureyringar og Húsvíkingur í haldi lögreglu

Þrír menn eru í haldi lögreglu grunaðir um kynferðisbrot gegn konu á þrítugsaldri á hóteli á Akureyri aðfaranótt sunnudags.

Morgunblaðið greinir frá þessu í dag en DV fjallaði fyrst um málið í gær. Þar kemur fram að Húsvíkingur á þrítugsaldri hafi verið handtekinn vegna málsins.

Samkvæmt upplýsingum mun konan hafa fengið aðhlynningu á Sjúkrahúsinu á Akureyri eftir atvikið. Hún var sögð hafa borið talsverða áverka eftir árásina.