Hvernig öðlumst við varanlega hamingju í breytilegum heimi? Er það hægt? Nei. Það er alltaf val og viðfangsefni á hverjum tíma. Við höfum stöðugt keppst við að bæta og efla efnisheiminn. Vandinn er að við höfum beint sjónum að ytri og veraldlegum gildum. Hugarró felst ekki í efnislegum gæðum enda mörg af vandamálum heimsins mannanna verk og eigin handbragð.
Íslendingar mælast ein hamingjusamasta þjóð á Jörðinni, við flykkjumst til útlanda, kaupmáttur og jöfnuður eykst með ári hverju, jöfnuður meðal kynja hvað mestur hér á landi, menntun stendur nær öllum til boða á öllum aldri, hingað vill flóttafólk koma í leit að betra lífi og hingað flykkjast þúsundir ferðamanna til að upplifa það sem við teljum sjálfsagt…
Það má kannski ekki vera jákvæður eða hamingjusamur enda lesi maður athugasemdakerfi vefmiðla og innlegg fólks á samfélagsmiðlum líður okkur ömurlega og heilbrigð skoðanaskipti hverfandi og því fjölgar þeim fáu sem ala á leiðindum, hatri og vantrausti. Djöfull höfum við það gott… …já, og svo eru jafndægur að vori og daginn því tekið að lengja; glansbjart, heiður himinn og sól. Nú eru dagur og nótt jafningar. Myrkur og ljós takast á. Á morgun nær dagurinn yfir.
Hamingjan ákvarðast fremur af hugarfari en ytri aðstæðum. Velgengni getur leitt til stundargleði. Stundum þarf að aðlaga sig að hamingjunni þó sumir sæki meira í væl og vosbúð til að gera sig að fórnarlambi. Sæla okkar eða vansæla helst gjarnan í hendur við hvernig við skynjum aðstæður okkar og hversu ánægð við erum með það sem við höfum. Tilhneiging okkar til samanburðar hefur mikil áhrif á það hvort við erum ánægð eða ekki. Lykilatriði er að vera sama um það sem öðrum finnst. Hættum að vökva leiðinlegt fólk og veita því athygli. Það eru miklu fleiri jákvæð og glöð. Veljum að njóta dagsins, gott fólk.

