Þingeyjarsveit hefur auglýst lausa til umsóknar stöðu skólastjóra við Stórutjarnaskóla, en umsóknarfrestur rennur út nú á föstudag, þann 13. mars 2026.
Málið var rætt bæði í sveitarstjórn og í fræðslu- og velferðarnefnd Þingeyjarsveitar í febrúar síðastliðnum, en fyrir sveitarstjórn lá þá uppsagnarbréf frá Birnu Davíðsdóttur skólastjóri. Í bókun sveitarstjórnar er Birnu þakkað fyrir störf hennar í þágu sveitarfélagsins í 17 ár.
Í auglýsingu frá Þingeyjarsveit segir að leitað sé að drífandi og traustum einstaklingi með góða þekkingu á skólastarfi til að leiða skapandi skólastarf og virkja þátttöku skólans í samfélagslegum nýsköpunarverkefnum í anda sjálfbærrar þróunar.
Ljósmynd: Rafnar Orri Gunnarsson / Film Húsavík

