„Við erum búnir að vera lengi á leiðinni, það er snjóblinda og langar bílaraðir, en við ætlum okkur á Músíktilraunir,“ segir tónlistarmaðurinn Jón Aðalsteinn Snæbjörnsson, en hann er á leið til Reykjavíkur ásamt hljómsveit sinni Útumallt & Appelsín þar sem þeir keppa í Músíktilraunum í kvöld. Hljómsveitin var stödd í sjoppu á Blönduósi þegar Húsavík.com heyrði í þeim.
Hljómsveitina Útumallt & Appelsín skipa þeir Jón Aðalsteinn á hljómborð, gítar og söng, Jóel Kárason á bassa, Snorri Freyr Sigurðsson á hljómborð og söng og Ellert Guðni Knútsson á trommur og söng, en þeir eru allir nemendur við Framhaldsskólann á Laugum.
„Við Ellert kepptum á Músíktilraunum í fyrra, en þetta er frumraun fyrir Snorra og Jóel,“ segir Jón Aðalstein og segir hann mikla spennu í hópnum fyrir kvöldinu.
Að eigin sögn er tónlistarsmekkur þeirra fjölbreyttur. „Útumallt & Appelsín er hljómsveit samansett af fjórum drengjum úr Framhaldsskólanum á Laugum. Smekkur okkar á tónlist er eins fjölbreyttur og Malt og Appelsín er gott en við eigum þó allir það sameiginlegt að vilja búa til skemmtilega tónlist,“ segir á vefsíðu Músíktilrauna.


