Evrópskir náms- og starfsráðgjafar í vettvangsferð á Húsavík

Blaðamaður Húsavík.com rakst í morgun á fríðan hóp náms- og starfsráðgjafa víðs vegar að úr Evrópu sem voru á göngu um Húsavík. Hópurinn er staddur á Norðurlandi í kynnisferð þar sem skoðaðir eru innviðir og starfsemi á sviði náms- og starfsráðgjafar.

Að sögn Ingunnar Helgu Bjarnadóttur, sérfræðings á mennta- og menningarsviði hjá RANNÍS og hluta af teymi innlendra mennta- og menningarsjóða og stoðverkefna Landskrifstofu Erasmus+, er ferðin skipulögð á vegum Evrópumiðstöðvar náms- og starfsráðgjafar. „Þetta er hópur náms- og starfsráðgjafa alls staðar að úr Evrópu sem er hér á ferðinni,“ segir Ingunn. Hópurinn var fyrr í dag íheimsókn í Framhaldsskólann á Laugum. Þaðan lá leiðin til Húsavíkur að kynna sér starfsemi á Stéttinni.

Ljósmynd: Örlygur Hnefill Örlygsson