Fjögur framboð byrjuð að safna meðmælum í Norðurþingi

Fjögur framboð eru nú byrjuð að safna meðmælum í gegnum Ísland.is fyrir komandi kosningar til sveitarstjórnar Norðurþings. Um er að ræða Framsókn, Óskalistann, M-lista Samfélagsins og V-lista Velferðar.

Framsókn og Óskalistinn hafa þegar kynnt allan framboðslista sinn. V-listi Velferðar hefur kynnt efstu fjóra á listanum og M-listi Samfélagsins efstu sex.

Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin hafa bæði kynnt lista sína í heild, en hafa enn ekki hafið söfnun meðmæla á Ísland.is.

Hægt er að mæla með sveitarstjórnarframboðum á vef Ísland.is:
https://island.is/umsoknir/maela-med-sveitarstjornarframbodi/