Iðnþing 2026 fór fram í Silfurbergi í Hörpu í vikunni. Samtök iðnaðarins stóðu að þinginu sem að þessu sinni bar yfirskriftina „Finnum samhljómin“. Metskráning var á þingið og yfir 700 gestir sátu þingið.
Meðal gesta var Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar stéttarfélags í Þingeyjarsýslum, sem sérstaklega var boðið að sitja þingið. Aðalsteinn segir í samtali við Húsavík.com mikilvægt að fulltrúar verkalýðshreyfingar og atvinnulífs taki þátt í umræðum um framtíð íslensks iðnaðar og atvinnulífs.
„Ég tek heilshugar undir áherslur þingsins. Það er ekki í boði að sitja hjá, allir bera ábyrgð. Við þurfum að stilla saman strengi og vinna að því að efla íslenskt atvinnulíf sem stendur frammi fyrir harðri samkeppni á alþjóðamörkuðum,“ segir Aðalsteinn Árni.
Rauði þráðurinn í umræðum á þinginu var að lífskjör landsmanna byggjast á framleiðslu verðmæta. Í ljósi aukinnar spennu á alþjóðasviðinu og breytts aðgengis að erlendum mörkuðum sé mikilvægt að standa vörð um samkeppnishæfni Íslands. Þá var einnig bent á að óvissa og þrengingar í efnahagsmálum hér á landi kalli á að heimatilbúnum hindrunum verði rutt úr vegi.
Aðalsteinn segir Framsýn reiðubúið að leggja sitt af mörkum til þeirrar vinnu og bendir á að atvinnuuppbygging í Þingeyjarsýslum skipti þar miklu máli.
„Það stendur ekki á Framsýn að taka þátt í þeirri vinnu. Við munum á næstu dögum funda með forsvarsmönnum Landsvirkjunar til að ræða stöðu PCC á Bakka og þær hugmyndir sem eru uppi um frekari atvinnuuppbyggingu á svæðinu. Það er afar mikilvægt að starfsemi PCC komist sem fyrst í eðlilegt horf og að fyrirtækjum sem hafa áhuga á uppbyggingu á Bakka verði veitt brautargengi,“ segir hann.
Að hans sögn þarf að nýta þá orku sem til staðar er í Þingeyjarsýslum til atvinnuuppbyggingar í heimabyggð. „Líkt og fram kom á Iðnþingi er lykilatriði að ná samhljómi um nauðsynlegar umbætur. Það á líka við um uppbyggingu á Bakka, þar þurfa allir að vinna saman,“ segir Aðalsteinn Árni Baldursson.

