Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar, fundaði á mánudag með Herði Arnarssyni, forstjóra Landsvirkjunar, í Reykjavík fyrir hönd stjórnar félagsins.
Á fundinum fór Hörður yfir áform Landsvirkjunar um frekari orkuvinnslu á Þeistareykjum og Kröflu, auk þess sem rætt var um þann áhuga sem fjárfestar hafa sýnt frekari uppbyggingu á Bakka við Húsavík. Þar var meðal annars vísað til viljayfirlýsinga sem gerðar hafa verið á síðustu vikum og mánuðum, en jafnframt kom fram að fleiri aðilar hefðu sýnt svæðinu áhuga án þess að ganga svo langt að undirrita slíkar yfirlýsingar.
Aðalsteinn Árni lagði áherslu á mikilvægi þess að orkan á svæðinu yrði nýtt til uppbyggingar atvinnulífs í Þingeyjarsveit og Norðurþingi, í fullri sátt við íbúa og nærsamfélagið.
Samkvæmt upplýsingum frá Framsýn var fundurinn mjög vinsamlegur og kom fram að Hörður hefði fullan skilning á stöðunni á Bakka, þar sem starfsemi PCC liggur nú niðri. Þá er sagður vilji hjá báðum aðilum til að halda góðu sambandi um uppbyggingu orkufreks iðnaðar norðan heiða.

