Hjálmar Bogi Hafliðason, forseti sveitarstjórnar og fulltrúi Framsóknar í byggðarráði Norðurþings, lagði fram tillögu á fundi ráðsins í gær um að fresta hluta framkvæmda sveitarfélagsins sem áætlaðar voru á þessu ári.
Tillagan kemur fram í ljósi óvissu í rekstri sveitarfélagsins, meðal annars vegna stöðvunar starfsemi kísilvers PCC á Bakka og vegna þeirra krafna sem hvalaskoðunarfyrirtæki á Húsavík hafa gert á hendur sveitarfélaginu til endurgreiðslu farþegagjalda.
„Sveitarfélagið stendur frammi fyrir verulegu tekjufalli og ófyrirséðum ytri áföllum. Þar vegur þyngst krafa á sveitarfélagið vegna endurgreiðslu farþegagjalda að hálfu hvalaskoðunarfyrirtækja á Húsavík sem nemur tæpum 200 milljónum króna og síðan þung staða sveitarsjóðs í kjölfar stöðvunar starfsemi PCC á Bakka. Það tekur í reksturinn að fá 50 milljónum króna minna í kassann á mánuði,“ segir Hjálmar Bogi í samtali við Húsavík.com.
Í tillögunni leggur Hjálmar til að framkvæmdum sem áætlað var að ráðast í á árinu 2026, að fjárhæð um 190 milljónir króna, verði frestað til ársins 2027. Þar er meðal annars um að ræða framkvæmdir við gólf og stúku í íþróttahöllinni á Húsavík, framkvæmdir við stjórnsýsluhús Norðurþings og byggingu nýrrar sundlaugar í Lundi.
„Á síðustu tveimur árum hefur sveitarfélagið ráðist í umtalsverðar fjárfestingar og mikilvægar framkvæmdir, þær mestu í marga áratugi. Við þær aðstæður sem nú eru uppi er hins vegar nauðsynlegt að bregðast við með ábyrgum og raunhæfum hætti. Tillagan felur ekki í sér að horfið sé frá verkefnunum, heldur að tímasetningu þeirra sé breytt til að mæta tímabundnum fjárhagsþrýstingi,“ segir Hjálmar.
Samkvæmt tillögunni myndi fjárfesting sveitarfélagsins í A-hluta á árinu 2026 nema um 410 milljónum króna í stað 595 milljóna króna sem samþykkt var í fjárhagsáætlun sveitarfélagsins fyrir árin 2026–2029.
„Markmiðið er að tryggja að sveitarfélagið geti staðið vörð um lögbundna þjónustu og mikilvægustu verkefni á sama tíma og brugðist er við óvenju erfiðri stöðu með yfirveguðum hætti. Fjárhagslegt svigrúm sveitarfélagsins er mjög takmarkað og því þarf að forgangsraða af ábyrgð,“ segir hann.
Fjármálastjóri lagði til frestun á afgreiðslu málsins og samþykkti ráðið það.

