Fótboltagoðsögnin Eric Cantona meðal leikara í stórmynd á Hólmavík

Franska fótboltagoðsögnin Eric Cantona er meðal leikara í alþjóðlegri kvikmynd sem nú er í tökum á Hólmavík á Ströndum. Verkefnið er umfangsmikið og hefur þegar vakið mikla athygli á svæðinu, enda er um að ræða alþjóðlegt kvikmyndaverkefni með stórum hópi erlendra og íslenskra kvikmyndagerðarmanna og leikara.

Myndin heitir Hólmavík og bærinn og nágrenni hans gegna lykilhlutverki í sögunni.

„Þetta er að gerast beint fyrir utan gluggann hjá mér, í Vilja Fiskverkun þar sem ég er með skrifstofu,“ segir Hólmvíkingurinn Andri Freyr Arnarsson, tónlistarmaður og fyrrum leikmaður Völsungs, í samtali við Húsavík.com. „Þetta er fyrsti tökudagurinn og þau verða hér sennilega í um einn og hálfan mánuð til viðbótar. Það hefur verið lokað fyrir umferð á sumum götum og það er mikil spenna í samfélaginu. Hér hefur meira að segja verið sett upp fyrsta umferðarljósið,“ segir Andri og bætir við að um sé að ræða „þotulið úr baskneska kvikmyndageiranum“.

Leikstjóri myndarinnar er baskneski kvikmyndagerðarmaðurinn Mikel Aguirresarobe. Meðal aðalleikara eru auk Cantona þau Sergio Peris-Mencheta og Ingrid García-Jonsson, en einnig taka íslenskir leikarar þátt í tökunum á Hólmavík, meðal annars Hannes Óli Ágústsson sem mörg þekkja úr Eurovision mynd okkar Húsvíkinga.

Áhrif kvikmyndaverkefna geta verið mikil

Íbúar á Húsavík þekkja vel hvaða áhrif stór kvikmyndaverkefni geta haft á samfélög. Hér hefur til dæmis kvikmyndin Eurovision Song Contest: The Story of Fire Saga haft veruleg áhrif á ferðamennsku og ímynd bæjarins, sérstaklega þar sem Húsavík fékk að halda nafni sínu í sögunni.

Ingibjörg Benediktsdóttir, sveitarstjórnarfulltrúi í Norðurþingi sem á ættir að rekja til Hólmavíkur, segir verkefnið hafa vakið mikla athygli í sinni gömlu heimabyggð.

„Þetta er stórt verkefni og mikil stemning í kringum það,“ segir Ingibjörg. „Það er alltaf spennandi þegar alþjóðleg kvikmyndagerð kemur til svona lítilla staða, og það getur haft jákvæð áhrif langt fram í tímann.“

Saga sem tengir Baskaland og Ísland

Söguþráður myndarinnar byggir á svonefndum Baskalögum og afnámi þeirra. Í sögunni er baskneskur lögfræðingur, Koldo að nafni, sendur til Íslands með mikla fjárhæð í reiðufé til að kaupa fiskvinnslu rétt áður en lögunum er aflétt.

Fljótlega komast heimamenn á snoðir um peningana og ætla sér að láta Koldo hverfa ásamt fjármununum. Í kjölfarið hefst spennuþrungin atburðarás þar sem Koldo reynir bæði að klára viðskiptin og forða sér frá hættunni. Í sögunni er einnig vísað til sögulegra atburða, meðal annars þegar síðustu Baskarnir voru sagðir hafa verið myrtir af mönnum Ara í Ögri fyrir um fjórum öldum.

Líf og fjör í bænum á meðan tökur standa yfir

Tökuliðið hefur þegar sett svip sinn á bæinn og aðalstöðvar þess eru í Hnyðju, þar sem kvikmyndahópurinn hefur komið sér fyrir. Í tilkynningu sem íbúum var send í vikunni segir að vegna verkefnisins geti orðið tímabundnar breytingar á aðgengi að einhverjum stofnunum sveitarfélagsins, en stefnt er að því að leysa slíkt í góðu samstarfi við íbúa.

Hólmavík og nágrenni hennar verða sýnd í allri sinni náttúrufegurð í myndinni. Kvikmyndagerðarmennirnir hafa jafnvel með léttu spaugilegu ívafi óskað eftir snjókomu fram í miðjan apríl, og hvatt galdramenn og galdrakonur Hólmavíkur til að leggja sitt af mörkum.