Kjartan Páll nýr oddviti Samfylkingarinnar í Norðurþingi

Samfylkingin kynnti framboðslista sinn fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Norðurþingi á félagsfundi sínum í dag. Listinn var samþykktur einróma með standandi lófaklappi. Nýr oddviti Samfylkingar er Kjartan Páll Þórarinsson, lögreglumaður og húsasmiður. Kjartan sat áður í sveitarstjórn Norðurþings kjörtímabilið 2014 til 2018 og gengndi síðar starfi íþrótta- og tómstundafulltrúa Norðurþings.

„Það eru teikn á lofti um krefjandi tíma fram undan hjá Norðurþingi. Jafnaðarmenn verða að eiga öfluga málsvara og ég fann köllun til þess að leiða það verkefni fyrir hönd Samfylkingarinnar. Ég er þakklátur fyrir það traust sem mér hefur verið sýnt og mun leiða flokkinn af heilindum í komandi kosningum,“ segir Kjartan Páll í tilkynningu frá framboðinu.

Athygli vekur að Benóný Valur Jakobsson, núverandi fulltrúi flokksins í sveitarstjórn Norðurþings, er ekki á listanum.

Listi Samfylkingarinnar í Norðurþingi 2026

1. Kjartan Páll Þórarinsson, lögreglumaður og húsasmiður.
2. Rebekka Ásgeirsdóttir, hjúkrunarfræðingur
3. Ísak Már Aðalsteinsson, framkvæmdastjóri og verkefnastjóri.
4. Agnieszka Szczodrowska, þjónustufulltrúi og túlkur.
5. Reynir Ingi Reinhardsson, lögfræðingur.
6. Regína Sigurðardóttir, formaður Félags eldri borgara á Húsavík og nágrenni.
7. Birta Guðlaug Sigmarsdóttir, sjúkraliðanemi.
8. Andreas Blesner, rafvirki og stuðningsfulltrúi.
9. Katla María Guðnadóttir, nemi.
10. Linda Birgisdóttir, einkaþjálfari.
11. Óskar Páll Davíðsson, umsjónarkennari.
12. Ruth Ragnarsdóttir, umsjónarkennari.
13. Egill P. Egilsson, fjölmiðlafræðingur og leiðbeinandi.
14. Helga Gunnarsdóttir, stuðningsfulltrúi.
15. Sigurður Jóhann Freygarðsson, bóndi og málarameistari.
16. Berglind Júlíusdóttir, kennsluráðgjafi og talmeinafræðingur.
17. Tryggvi Grani Jóhannsson, nemi.
18. Gunnar Valdimarsson, heiðursfélagi.