Norðurþing hefur undanfarið ár skrifað undir nokkrar viljayfirlýsingar vegna þróunar á fyrirhuguðum verkefnum á Bakka. Eðli málsins samkvæmt hafa margir velt fyrir sér hver þýðing þessara viljayfirlýsinga sé.
Gerð viljayfirlýsingar markar mikilvægt skref í ferlinu og staðfestir að sveitarfélagið telji að umrætt verkefnið eigi heima á iðnaðarsvæðinu á Bakka. Með viljayfirlýsingunni er skýrt undirstrikað að báðir aðilar hafi sameiginlegan skilning á meginmarkmiðum verkefnisins, umfangi þess og þeim ávinningi sem það getur haft fyrir samfélagið. Flestar viljayfirlýsingarnar eru til skamms tíma og eru í þeim vörður sem kveða á um framgang verkefnisins, þannig að ef vörðurnar nást ekki er hægt að slíta viljayfirlýsingunni.
Viljayfirlýsingar eru ekki bindandi samningar, en þær gegna engu að síður hlutverki í undirbúningsvinnu stórra framkvæmda. Þær skapa sameiginlegan ramma utan um verkefnið, skilgreina hvernig aðilar hyggjast vinna saman og auðvelda framhaldsvinnu á skipulags-, leyfis- og hönnunarstigi. Með því að leggja fram skýra yfirlýsingu um stuðning og áherslur tryggir sveitarfélagið að aðrir hagaðilar geti treyst því að verkefnið njóti raunverulegs vilja og velvildar á staðnum.
Undirrituð viljayfirlýsing mun jafnframt hjálpa verkefninu að komast áfram í samtölum við lykilaðila á borð við fjárfesta, orkufyrirtæki og aðrar stofnanir sem þurfa að eiga aðkomu að næstu skrefum. Fyrir slíka aðila er mikilvægt að ljóst sé að sveitarfélagið sjái tækifæri í verkefninu og hafi skuldbundið sig til að styðja það áfram, innan þeirra ramma sem lög og reglur heimila. Slík staðfesting styrkir trúverðugleika verkefnisins, hjálpar til við að draga úr óvissu og eykur líkur á að samningar og fjármögnun geti komist á.
Höfundur er verkefnastjóri atvinnuuppbyggingar á Bakka.

