Hilda Rós í 5. sæti M-Lista Samfélagsins

Hilda Rós Pálsdóttir, kennari við Borgarhólsskóla á Húsavík, skipar 5. sæti á M-Lista Samfélagsins í Norðurþingi fyrir kosningar til sveitarstjórnar í Norðurþingi í vor.

Í tilkynningu frá framboðinu segir að Hilda hafi brennandi áhuga á málefnum barna, fatlaðra og eldri íbúa og segi þessa hópa vera sitt „besta fólk“. Menntun hennar og starfsferill hafi að stórum hluta snúist um að styrkja menntun, lífsgæði, virkni og líðan þeirra sem þurfa á stuðningi samfélagsins að halda.

Þá kemur fram í tilkynningunni að Hilda sé með B.A.-próf í sálfræði og meistarapróf í kennslu (M.Ed.) og hafi starfað bæði á Húsavík og í Danmörku, þar sem hún bjó og starfaði í níu ár. Síðustu ár hefur hún starfað sem umsjónarkennari í Borgarhólsskóla og áður meðal annars verið forstöðumaður á sambýlinu Pálsgarði.

Fréttatilkynning frá M-Lista Samfélagsins í heild:

Hilda Rós Pálsdóttir skipar 5. sæti M-Lista Samfélagsins

Hilda Rós Pálsdóttir kennari í Borgarhólsskóla á Húsavík, skipar 5. sæti á M-Lista Samfélagsins í Norðurþingi, fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar.

Hilda brennur fyrir málefnum barna, fatlaðra og eldri íbúa í Norðurþingi. Hún telur þessa hópa vera hennar besta fólk, enda hefur hennar menntun og starfsferill farið í að styrkja og styðja menntun, líf og virkni og líðan þeirra.

Hilda er með góða menntun og fjölbreyttan starfsferil að baki, bæði á Húsavík og Danmörku, þar sem hún bjó og starfaði í 9 ár. Hún er með B.A. próf í sálfræði og meistarapróf í kennslu, svokallað M.Ed próf (kennsluréttindi). Hún hefur starfað síðustu ár sem umsjónarkennari í Borgarhólsskóla á Húsavík og auk þess hefur hún m.a. starfað sem forstöðumaður á sambýlinu Pálsgarði.

Hún nýtur hvers dags í Borgarhólsskóla, þar sem hún starfar nú, við kennslu og ýmislegt annað með nemendum sínum, í samvinnu við samstarfsfólk, annað fagfólk og foreldra.

Hilda telur að Húsavík sé góður staður fyrir börn að alast upp á, þó svo að töluvert rými sé fyrir bætingar. Leik- og grunnskóli eru mikilvægur náms- og
félagsmótunaraðili. Hana langar að gæta þess að þjónustan við börn verði fagleg, árangursmiðuð og í samræmi við lög og námskrár leik- og grunnskóla.

Starfsfólk skólanna (Grænuvalla og Borgarhólsskóla) er allt af vilja gert til að gera eins vel fyrir börnin og kostur er, en stundum vantar fleiri hendur og úrræði.

„Ég er einnig áhugasöm um rekstur og faglegt starf í leik- og grunnskólum í
norðursýslunni, þar hefur verið óvissa sem við þurfum að finna lausn á. Í þeirri vinnu þurfum við sérstaklega að gæta að hagsmunum barnanna.

Hana langar að Norðurþing verði aðlaðandi kostur fyrir barnafólk. Að fólk vilji setjast hér að og brottfluttir Húsvíkingar, Keldhverfingar, Öxfirðingar og Raufarhafnarbúar vilji koma aftur og að við getum tekið vel á móti þessu fólki með góðri atvinnu, húsnæði, skólum, matvörubúðum og annarri þjónustu.

„Mig langar í fjölbreyttari afþreyingu fyrir börn og unglinga, utan
Borgarhólsskóla/Frístundar, s.s. meiri útiveru, hreyfingu, tómstundir og íþróttir. Börn og unglingar þurfa fleiri gæðastundir og þeim þarf að líða vel í námi, leik og öðru starfi.“
Hilda Rós er gift Guðmundi Helga Jóhannessyni starfsmanni Bílaleigu Húsavíkur og
eiga þau fjögur börn.