„Hugmyndir krakkanna verða innblástur fyrir fullorðna á Krubbi“

Það er sterk orka í loftinu á Húsavík þessa vikuna, enda styttist í hið árvissa hugmyndahraðhlaup Krubb, sem fer fram á Stéttinni og víðar um bæinn um helgina. Í ár verður viðburðurinn með aðeins breyttu sniði, því börn úr bænum munu setja tóninn fyrir hugmyndavinnuna sem snýr að því að efla samfélagið fyrir þau. Við hittum Hildi Halldórsdóttur, verkefnastjóra hjá SSNE, sem er ein af skipuleggjendum viðburðarins.

Krubbur snýst um þjálfa ákveðna hugsun

„Í ár er áherslan á betri bæ fyrir börn. Þarna erum við að upphefja það starf sem hefur farið fram hjá Hagsmunasamtökum barna og í viðburðunum Framtíðin er okkar sem STEM Húsavík hefur verið með. Nú eru sveitarstjórnarkosningar að nálgast og frábært tækifæri fyrir bæði frambjóðendur og aðra íbúa að fá hugmyndir og fylgja þeim eftir með því að þjálfa nýsköpunarvöðvana í Krubbi,“ segir Hildur.

Krubburinn snýst ekki eingöngu um að finna eina góða hugmynd heldur að skapa rými þar sem hugsun fær að hreyfast frjálslega. Þar er verið að æfa ákveðinn hugsunarhátt, nýsköpunarvöðvann, eins og Hildur orðar það svo skemmtilega sjálf.

„Í Krubbi er bæði verið að þjálfa hugmyndaauðgi og almenna nýsköpunarhugsun og það að leyfa sér að vera með frumkvæði.“ Þetta er rými þar sem það er ekki aðeins leyfilegt að prófa sig áfram heldur beinlínis hvatt til þess.

Krakkarnir setja tóninn í hugmyndavinnunni

En það sem setur svip sinn á Krubb í ár er ný viðbót sem snýr að yngri íbúum bæjarins. Í upphafi Krubbs verður haldinn svokallaður Krakkakrubbur, þar sem nemendur í 4. bekk Borgarhólsskóla taka þátt í hugmyndasmiðju undir leiðsögn Svövu Bjarkar Ólafsdóttur og Ninnu Margrétar Þórarinsdóttur hjá Hugmyndasmiðum. Þar fá börnin að kynnast því hvernig hugmyndir verða til, hvernig hægt er að þróa þær áfram og ekki síst hvernig hægt er að gera þær áþreifanlegar.

„Það sem er nýtt í ár og tengist viðfangsefninu er að við höldum Krakkakrubb um morguninn. Krakkar úr 4. bekk koma og verða í hugmyndasmiðjum. Þar læra þau ýmislegt um skapandi hugsun, nýsköpun og leiðir til að láta hugmyndir sínar verða að veruleika,“ segir Hildur. Hún bendir á að börnin fari meðal annars í svokallað frumgerðarverkstæði þar sem þau fá að setja hugmyndir sínar í form sem hægt er að sýna öðrum. Sú vinna byggir á reynslu þeirra sem standa að verkefninu, meðal annars úr Þykjó og Gerverinu í Elliðaárstöð, þar sem unnið hefur verið markvisst með skapandi ferli barna.

Það sem gerir Krakkakrubbinn sérstaklega áhugaverðan er að hann er ekki einangraður viðburður heldur hluti af stærra samhengi. Hugmyndir barnanna munu lifa áfram inn í sjálfan Krubbinn síðar um daginn. „Þessar hugmyndir krakkanna verða innblástur fyrir fullorðna á Krubbi. Það verður verðmætt fyrir eldri þátttakendur í Krubbi að fá að vinna út frá hugmyndum barnanna,“ segir Hildur. Þannig verður til samtal milli kynslóða þar sem sýn barnanna fær að hafa áhrif á þá sem eldri eru og móta áframhaldandi hugmyndavinnu.

Í ár er unnið með skýrt þema sem snýr að því hvernig hægt sé að gera bæi betri fyrir börn. Þar er horft til þess hvernig skapa megi öruggara og lifandi umhverfi þar sem börn fá að njóta sín, hvort sem það snýr að götum, grænum svæðum eða rýmum til leiks og samveru. Samhliða því er einnig opin áskorun sem kallast Opni glugginn, þar sem þátttakendur geta unnið með hvaða hugmynd sem er.

Opinn gluggi fyrir hugmyndir

„Við erum líka með þessa áskorun sem nefnist Opni glugginn, þar má vinna með hvaða hugmynd sem er og þarf ekki að tengjast þemanu. Það getur verið hugmynd að fyrirtæki eða verkefni, og það má fá hugmyndina á staðnum eða mæta með hugmynd,“ segir Hildur og undirstrikar að þar séu engar rangar hugmyndir, aðeins tækifæri.

Heitið Krubbur á sér ákveðna merkingu í huga Húsvíkinga. Nafnið vísar til svokallaðs Krubbsveðurs sem getur skapast hér, þegar vindur stendur þannig að stormur geisar og fólk heldur sig innandyra. Í þessu samhengi er það þó ekki veðrið sjálft sem skiptir máli heldur sú myndlíking sem felst í því að skapa ákveðinn kraft og hreyfingu, eins konar storm í hugum þátttakenda.

Skráning í Krubb er þegar hafin og er öllum á aldrinum 16 til 99 ára boðið að taka þátt.