Húsvíski fjárhundurinn Freyja slær í gegn í Bretlandi

Íslenski fjárhundurinn Freyja, sem áður bjó á Húsavík, vakti mikla athygli á stærstu hundasýningu Bretlands, Crufts, sem fram fór í Birmingham í vikunni.

Freyja fæddist á Íslandi árið 2013 og bjó á Húsavík áður en hún flutti til Bretlands með eiganda sínum, Kate Tench, árið 2016. Freyja dvaldi aftur á Húsavík á árunum 2019 til 2020. Þrátt fyrir að vera komin á efri ár, en Freyja er nú 12 ára gömul, hlaut hún þann heiður að vera einn af fyrstu fulltrúum íslenska fjárhundsins á Crufts sem svokallaður Breed Ambassador í kynningarsvæði sýningarinnar sem kallast Discover Dogs. Þar kynna eigendur sjaldgæfari hundategundir fyrir gestum sýningarinnar.

Íslenski fjárhundurinn var viðurkenndur af breska Hundaræktarfélaginu (The Kennel Club) fyrst á síðasta ári, sem gerði það að verkum að tegundin var boðin velkomin á Crufts í fyrsta sinn í ár.

Að sögn Kate eigenda Freyju vakti hún mikla athygli á sýningunni og fjölmargir gestir, þar á meðal Íslendingar, komu við á kynningarbásnum til að heilsa upp á hana.

Með Freyju á básnum voru tveir aðrir íslenskir fjárhundar: Stormur, fjögurra ára rakki sem var fluttur til Bretlands frá Íslandi sem hvolpur, og Buster, átta mánaða rakki sem kom frá Bandaríkjunum. Tegundin er enn mjög fágæt í Bretlandi og eru aðeins um tuttugu íslenskir fjárhundar skráðir þar í landi.