Skákfélagið Goðinn vann til bronsverðlauna á Íslandsmóti skákfélaga, seinni hluta, sem fram fór um helgina í Rimaskóla í Reykjavík. A-lið Goðans varð í 3. sæti í 3. deild með 9 stig af 14 mögulegum og samtals 20,5 vinninga í hús. Liðið vann allar sínar viðureignir í seinni hlutanum, en bilið í efstu tvö liðin var of mikið eftir erfiðan fyrri hluta í nóvember, þar sem A-liðið var ekki eins sterkt og það var núna um helgina.
Goðinn vann mikilvægan sigur á C-sveit SA 3,5-2,5 í 5. umferð og það lá fyrir að þetta væri lykil viðureign sem mætti helst ekki tapast. Ádám Gulyás byrjaði viðureignina með sigri á neðsta borði og aðrar skákir enduðu með jafntefli, enda sveitirnar báðar mjög svipaðar á stigum.
Síðari viðureignin laugardagsins var gegn botnliði Snæfellsbæjar sem voru þegar fallnir þegar umferðin hófst. Aftur var það Ádám sem byrjaði á sigri en í þetta skiptið vegna þess að hann fékk ekki andstæðing. Jakob Sævar og Smári unnu sínar skákir en Rúnar tapaði. Það fór svo að tvö jafntefli litu dagsins ljós á efstu borðunum hjá Inga Tandra og Sigurði Jóni og Goðinn vann 4-2.

Í loka umferðinni á sunnudeginum fengum við vini okkar úr Skagafirðinum. Bæði lið voru örugg um áframhaldandi sæti í 3. deild en ljóst var að með sigri Goðans væri 3. sætið í deildinni tryggt og svo fór að lokum. Smári, Kjartan og Rúnar unnu sínar skákir, en Jakob tapaði. Aftur gerðu þeir Ingi Tandri og Sigurður Jón jafntefli á efstu borðunum og 4-2 sigur staðreynd og 3. sætið tryggt.
Eftir erfiðan fyrri hluta í nóvember var það kærkomið að geta stillt upp mun sterkara liði núna í seinni hlutanum. Innkoma Sigurðar Jóns og Kjartans Ingvarssonar skipti þar sköpum og liðsmenn A-liðsins voru kátir með brons verðlaunin sem þeir fengu strax eftir sigurinn gegn Skagfirðingum.
Sterkara A-lið leiddi af sér aðeins sterkara B-lið, en það dugði ekki til gegn TR-e sveit þar sem sú viðureign tapaðist 2-4. Kristján Ingi vann á efsta borði og Óskar Páll og Sighvatur gerðu jafntefli á neðstu tveimur borðunum. Hilmar, Ævar og Ingi Hafliði töpuðu sínum skákum.
Í seinni umferðinni á laugardeginum fékk B-liðið svo TR-f sveit. Hermann, Hilmar, Ævar og Sighvatur unnu sínar skákir en Kristján og Lárus töpuðu. Viðureignin fór því 4-2 og ljóst að B-sveitin myndi parast gegn sterkari sveit í lokaumferðinni á sunnudeginum.
B-liðið fékk SFÍ-b sveit og var mikill stigamunur á öllum borðum okkur í óhag. Fyrirfram var stórt tap í uppsiglingu en raunin varð önnur. Kristján Ingi vann sigur á mun stiga hærri andstæðingi á öðru borði og Ádám Gulyás, sem var kominn niður í B-liðið í þessari umferð, gerði jafntefli á 1. borði og það gerði einnig Ingi Hafliði á 4. borði. Hilmar, Hannibal og Lárus töpuðu sínum skákum. Viðureignin fór því 2-4 og langt því frá að vera algjört burst.
B-sveit Goðans endaði því í 16 sæti í 4. deild af 24 liðum, með 6 stig og 20 vinninga en var talsvert frá toppnum að þessu sinni.

Heilt yfir má segja að árangurinn hafi verið ágætur hjá báðum liðum. Ljóst var að ólíklegt væri að A-liðið næði 1 eða 2. sæti í 3. deild þar sem við náðum ekki að stilla upp nægilega sterku liði í fyrri hlutanum. Til þess var forskot hinna liðanna orðið of mikið fyrir seinni hlutann.
Sigurður Jón Gunnarsson kom inn á 2. borð í A-liðið eftir margra ára fjarveru frá skákborðinu og gerði jafntefli í öllum sínum þremur skákum. Traust endurkoma hjá Sigurði. Kjartan Ingvarsson gekk til liðs við Goðann nú nýlega og kom sterkur inn á 4 og 5. borð. Hann tefldi tvær skákir, báðar með svörtu, vann aðra og gerði jafntefli í hinni. Sterk innkoma hjá Kjartani.
Ingi Tandri Traustason var traustur að venju og leiddi A-liðið í tveimur umferðum og gerði jafntefli í þeim báðum. Smári Sigurðsson og Ádám Gulyás unnu báðir tvær skákir og gerðu eitt jafntefli. Jakob Sævar Sigurðsson og Rúnar Ísleifsson voru báðir með 1X2 í sínum skákum, unnu eina, gerðu eitt jafntefli og töpuðu einni skák. Aðrir tefldu ekki í A-sveitinni í seinni hlutanum. A-liðið á Chess-results.
Kristján Ingi Smárason fékk 2 vinninga af 3 mögulegum í B-sveitinni. Sighvatur Karlsson fékk 1,5 vinninga af 2 mögulegum, Hermann Aðalsteinsson fékk 1 vinning af 1 mögulegum. Ævar Ákason fékk 1 af 2 mögulegum. Hilmar Freyr Birgisson fékk 1 af 3 mögulegum og þeir Ingi Hafliði Guðjónsson og Óskar Páll Davíðsson fengu hálfan vinning hvor. Aðrir komust ekki á blað í B-liðinu. B-liðið á chess-results.
Ljóst er að 3. deildin næsta keppnistímabil verður öflug. Mislyndir Biskupar unnu sig upp úr 4. deild og Austfirðingar féllu niður í 3. deild úr 2. deild. Það verða því Þingeyingar, Skagfirðingar og Austfirðingar með lið í 3. deild á næsta ári, auk sveitar frá Akureyri.
Að lokum vil ég þakka öllum þeim sem tefldu fyrir Goðann í mótinu tímabilið 2025-26
Hermann Aðalsteinsson formaður og liðsstjóri Goðans

