„Kom mér stórkostlega á óvart og ég er enn að jafna mig“

Blaðamaður Húsavík.com leit við á skrifstofum stéttarfélaganna og hitti þar fyrir Aðalstein J. Halldórsson, oddvita Tjörneshrepps og fyrsta mann á T-listanum í síðustu tveimur sveitarstjórnarkosningum í Tjörneshreppi. Listinn var í bæði skiptin einn í kjöri, eins og raunar oft áður í hreppnum.

Oddvitinn segist ekki reikna með mótframboði í ár. „Það er ekki byrjað að stilla upp, en ég á ekki von á miklum vendingum,“ segir Aðalsteinn.

Hann viðurkennir að hugur sinn hafi fremur verið í pólitíkinni í Norðurþingi í gær, enda bárust þaðan nokkur tíðindi þegar greint var frá því að Guðmundur Halldórsson málari skipaði fjórða sæti á V-lista Velferðar.

„Ég las það fyrst á Húsavík.com að bróðir minn væri kominn í framboð. Þetta kom mér stórkostlega á óvart og ég er enn að jafna mig eftir þessi tíðindi,“ sagði oddvitinn glettinn.

T-listinn á að baki áratuga sigurgöngu í Tjörneshreppi. Síðast voru tveir listar í kjöri til hreppsnefndar árið 1978. Þá leiddi Úlfur Indriðason, bóndi á Héðinshöfða, H-listann en Sigrún Ingvarsdóttir, húsfreyja á Héðinshöfða, leiddi þá I-listann.

T-listinn í síðustu kosningum var þannig skipaður:

1. Aðalsteinn J. Halldórsson bóndi og oddviti Ketilsstöðum
2. Jón Gunnarsson bóndi Árholti
3. Katý Bjarnadóttir lögfræðingur Héðinshöfða 2
4. Smári Kárason sveitarstjórnarmaður Breiðuvík
5. Sveinn Egilsson bóndi Sandhólum
6. Jónas Jónasson bóndi Héðinshöfða
7. Sigurbjörg Sveinbjörnsdóttir bóndi Mýrarkoti
8. Eyrún Dögg Guðmundsdóttir húsmóðir Árholti
9. Sigríður Hörn Lárusdóttir þjónustufulltrúi
10. Marý Anna Guðmundsdóttir húsmóðir Syðri-Sandhólum

Ljósmyndir: Hörður Jónasson / Heiðar Hrafn Halldórsson