Ladies Circle 5 á Húsavík bjóða öllum sem vilja að taka þátt í notalegum góðgerðarviðburði sem fer fram í félagsheimili eldri borgara í dag, þar sem fólk kemur saman til að prjóna peysur sem síðar verða gefnar langveikum börnum.
Húsavík.com ræddi við Helgu Gunnarsdóttur, einn af skipuleggjendum viðburðarins. „Góðgerðarmars er verkefni þar sem klúbbar eru hvattir til að gera góðverk og leggja sitt af mörkum til að bæta samfélagið. Í ár ákváðum við að halda viðburð og prjóna fyrir Míu Magic. Við höfum fylgst með Míu Magic þar sem ein í hópnum hefur notið mjög góðs af félaginu svo þessi hugmynd átti vel við. Síðan finnst okkur gaman að virkja samfélagið svo við ákváðum að hafa viðburðinn opinn fyrir alla,“ segir Helga.
Viðburðurinn er öllum opinn og einfaldur í framkvæmd: þátttakendur mæta í Hlyn með prjóna og garn, en uppskrift verður á staðnum. Markmiðið er að prjóna saman peysu á einum sunnudegi sem síðar verður afhent í gegnum góðgerðarfélagið Mía Magic.
Mía Magic er íslenskt góðgerðarfélag sem hefur það að markmiði að gleðja langveik börn og fjölskyldur þeirra, auk þess að stuðla að fræðslu um veikindi og það sem þeim fylgir. Peysurnar sem prjónaðar verða á viðburðinum munu síðar rata til barna sem tengjast starfsemi félagsins.

