Listi Framsóknar í Norðurþingi samþykktur í morgun

Á félagsfundi Framsóknarfélags Þingeyinga í morgun var B-listi Framsóknarflokksins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar í Norðurþingi samþykktur. Nýr oddviti listans listans er Eysteinn Heiðar Kristjánsson sjúkraflutningamaður og ökukennari.

Fyrstu fjögur sætin voru kynnt um síðustu helgi, en listinn í heid í dag. Í fimmta sæti situr Eiður Pétursson, einn núverandi sveitarstjórnarfulltrúa flokksin, og í því sjötta er Helga Björg Sigurðardóttir, þjónustustjóri hjá Sjóböðunum á Húsavík. Hjálmar Bogi Hafliðason sem hefur setið á oddvitastól flokksins í síðustu tvennum kosningum skipar heiðurssæti listans, en heimildir herma að hann verði kosningastjóri framboðsins.

Eftir að listinn hafði verið borinn upp og staðfestur ávarpaði Eysteinn fundinn og fór yfir málefni og verkefni vikurnar fram að kosningum.

Sjá einnig: Eysteinn Heiðar leiðir lista Framsóknarflokks í Norðurþingi

Listi Framsóknar í Norðurþingi 2026

  1. Eysteinn Heiðar Kristjánsson, verkefnastjóri.
  2. Bylgja Steingrímsdóttir, sjúkraliði.
  3. Kristinn Rúnar Tryggvason, bóndi og atvinnurekandi.
  4. Elísabet Anna Helgadóttir, geislafræðingur.
  5. Eiður Pétursson, vélfræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi.
  6. Helga Björg Sigurðardóttir, þjónustustjóri GeoSea.
  7. Steinarr Bergsson, íþrótta og heilsufræðingur.
  8. Nele Marie Beitelstein, fjölmenningarfulltrúi.
  9. Vilborg Hrund Jónsdóttir, bóndi.
  10. Friðrik Aðalgeir Guðmundsson, skrúðgarðyrkjunemi.
  11. Anna Sigrún Mikaelsdóttir, eldri borgari.
  12. Unnsteinn Ingi Júlíusson, heimilislæknir.
  13. Hanna Jóna Stefánsdóttir, hjúkrunarfræðingur.
  14. Elmar Ægir Eysteinsson, háskólanemi.
  15. Soffía Gísladóttir, vinnumarkaðssérfræðingur og sveitarstjórnarfulltrúi.
  16. Lilja Skarphéðinsdóttir, ljósmóðir og eldri borgari.
  17. Sigurgeir Aðalgeirsson, bókari.
  18. Hjálmar Bogi Hafliðason, deildarstjóri og forseti sveitarstjórnar.