Mikil aukning í heimsóknum á Húsavík.com

Mikil aukning hefur verið í heimsóknum á vefinn Húsavík.com síðustu þrjár vikur. Síðustu sjö daga hefur vefurinn fengið alls 23.557 heimsóknir, sem er veruleg aukning frá fyrri vikum, en á tímabilinu 16.–22. febrúar voru heimsóknir 10.759, en þær jukust í 14.994 vikuna 22. febrúar – 1. mars.

Aukningin skýrist meðal annars af því að síðustu vikur hafa verið viðburðaríkar í samfélaginu. Nokkur stór fréttamál hafa verið í gangi, góður árangur hjá íþróttafólki á svæðinu og mikið er að gerast í undirbúningi framboða fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar. Þá hefur einnig verið vísað í fréttir Húsavík.com frá nokkrum landsmiðlum, sem hefur aukið sýnileika vefsins enn frekar.

Þessi heimsóknafjöldi sýnir að áhugi á málefnum svæðisins nær víða og að umfjöllun um samfélagið á Húsavík og í Þingeyjarsýslum vekur athygli bæði innan svæðis og víðar.

Nú leitar vefurinn að bakhjörlum og auglýsendum og er hægt að hafa samband í síma 848-7600 til að standa við bakið á fjölmiðlun í heimabyggð.