Myndir: Bleika liðið sigraði þrautabrautir í Sundlaug og Íþróttahöll á Dillidögum FSH

Það var mikið fjör í Sundlaug Húsavíkur í gær þegar nemendur í Framhaldsskólanum á Húsavík komu þar upp skemmtilegri þrautabraut í tengslum við hina árlegu Dillidaga skólans. Dillidagar eru einn af hápunktum skólaársins þar sem nemendur keppa í ýmsum þrautum og verkefnum yfir heila viku.

Nemendum er skipt í þrjú litalið, blátt, grænt og bleikt, og safna liðin stigum með þátttöku og árangri í fjölbreyttum verkefnum. Í sundlauginni kepptu liðin um að komast sem hraðast í gegnum þrautabrautina og þar hafði bleika liðið betur.

Í samtali við Húsavík.com sagði Rakel Dögg Hafliðadóttir, kennari við Framhaldsskólann á Húsavík, að Dillidagar væru í fullum gangi og að keppnin væri bæði skemmtileg og spennandi. Bleika liðið hefur verið á miklu skriði í gær og í dag því liðið sigraði einnig fyrr í dag í þrautabraut sem haldin var í íþróttahöllinni. Þrátt fyrir það hafa öll liðin verið dugleg að hala inn stigum og er staðan enn jöfn og baráttan ennþá hörð.

Á morgun heldur keppnin áfram þegar Dillu-Cup fer fram í GPG höllinni klukkan 10. Þar verða nemendur aftur í eldlínunni og er öllum áhugasömum velkomið að koma og fylgjast með.