Myndir frá opnun sýningarinnar Margslunginn einfaldleiki í Safnahúsinu

Fjölmenni var á opnun listasýningar á verkum Tryggva Ólafssonar og Thors Vilhjálmssonar í Safnahúsinu á Húsavík í gærkvöldi. Listamennirnir hefðu báðir átt stórafæli nýlega, en 100 ára voru frá fæðingu Thors í fyrra og 85 ár frá fæðingu Trygga. Söngkonan Arndís Inga Árnadóttir flutti nokkur lög ásamt Hilmari Þór bróður sínum og forstöðumaður safnsins Árni Pétur og sýningarstjórinn Örlygur Hnefill fluttu stutt ávörp.

Sýningin er opin þriðjudaga til föstudaga frá kl. 13 til 16 og laugardaga frá kl. 11 til 16. Þeir bræður Örnólfur og Guðmundur Andri Thorssynir og Gígja Tryggvadóttir komust ekki á opnunina vegna veðurs, en auglýstur verður viðburður með þeim síðar þar sem boðið verður upp á skemmtilegt samtal um líf og list þessara merku vina.

About Jóhanna Ásdís Baldursdóttir

View all posts by Jóhanna Ásdís Baldursdóttir →