Óskalistinn með fullmannað lið til leiks í Norðurþingi

Ó-listinn hefur nú fullmannað framboðslista sinn fyrir sveitarstjórnarkosningarnar í Norðurþingi í vor. Í fyrsta sæti listans er Ómar Gunnarsson málari á Kópaskeri, sem farið hefur fyrir undirbúningi framboðsins.

Í öðru sæti er Gísli Þór Briem starfsmaður HSN og sjálfstætt starfandi atvinnurekandi á Raufarhöfn, og í þriðja sæti Einar Sigurðsson útgerðarmaður á Raufarhöfn. Í fjórða sæti er Ann-Charlotte Fernholm bóndi í Öxarfirði, og í fimmta sæti Elvar Már Stefánsson verkamaður á Kópaskeri.

Forsvarsfólk framboðsins segja meginmarkmið þess vera að fá fleiri sjónarhorn inn í umræðu og ákvarðanatöku í sveitarfélaginu.

„Sem fyrr er aðal tilgangur framboðsins að fá fleiri vinkla á málefnin, beint úr samfélögunum. Í stóru og víðfeðmu sveitarfélagi þarf að mörgu að gæta og mikilvægt að sem flestar raddir komi að sem flestum málum,“ segir í tilkynningu frá framboðinu.

Húsavík.com ræddi við Ómar Gunnarsson oddvita Ó-listans á dögunum og sagði hann þá að framboðið hefði sprottið upp úr umræðum fólks á austursvæði sveitarfélagsins sem teldi mikilvægt að fleiri raddir kæmu að borðinu í málefnum Norðurþings. „Við viljum sjá fleiri raddir koma inn í sveitarstjórn og nefndir héðan af svæðinu, en ekki bara þessa einn til tvo frambjóðendur sem eru settir á lista fyrir kosningar, meira til skrauts,“ sagði Ómar.

Hann sagði jafnframt að margir hefðu orðið þreyttir á því að landsmálaflokkar réðu ferðinni í sveitarstjórnarmálum. „Það eru margir komnir með leið á þessum landsmálaflokkum sem er verið að troða inn í sveitarstjórnarkerfið, sérstaklega í svona fámennu samfélagi eins og Norðurþing er,“ sagði Ómar.

X-Ó Óskalistinn

Framboð til sveitarstjórnarkosninga 2026

Nr. Nafn Starf / titill
1 Ómar Gunnarsson Málari
2 Gísli Þór Briem Starfsmaður HSN og sjst. atvinnurekandi
3 Einar Sigurðsson Útgerðarmaður
4 Ann-Charlotte Fernholm Bóndi
5 Elvar Már Stefánsson Verkamaður
6 Svala Rut Stefánsdóttir Húsmóðir
7 Maríus Snær Halldórsson Bóndi
8 Matthildur Dögg Jónsdóttir Bókari
9 Bjarni Harðarson Leiðsögumaður
10 Kolbrún Valbergsdóttir Rithöfundur
11 Einar Atli Helgason Tæknistjóri
12 Silja Rún Stefánsdóttir Skólaliði
13 Guðmundur Magnússon Hafnarvörður
14 Jón Ketilsson Sjómaður
15 Árdís Inga Höskuldsdóttir Sjávarútvegsfræðingur
16 Heiðar H. Hermundsson Verkamaður
17 Halldór Svanur Olgeirsson Bóndi
18 Stefán Leifur Rögnvaldsson Vinnumaður