Leikfélag Húsavíkur ræðst ekki á garðinn þar sem hann er lægstur og setur í vetur upp einn þekktasta rokksöngleik allra tíma: Rocky Horror.
„Það sem skín í gegn frá fyrsta atriði og allt til loka verksins eru orkan og leikgleðin í hópnum“
Rocky Horror hjá Leikfélagi Húsavíkur
Leikárið 2025–2026
Leikstjóri: Eyvindur Karlsson
Höfundur: Richard O’Brien
Íslensk þýðing: Bragi Valdimar Skúlason
Leikhúsrýni og ljósmyndir: Örlygur Hnefill Örlygsson
The Rocky Horror Show vakti mikla athygli þegar verkið var fyrst sýnt árið 1973 í Royal Court Theatre í London, og varð svo ódauðlegur hluti af poppmenningu með kvikmyndinni The Rocky Horror Picture Show. Höfundurinn Richard O’Brien lék sér að kynhlutverkum, sjálfsmynd og samfélagslegum viðmiðum á tíma þegar slík umræða var sjaldgæf á leiksviði. Þetta er raunar ekki í fyrsta sinn sem Rocky fer á fjalirnar í Samkomuhúsinu á Húsavík, en Píramus & Þispa setti verkið upp árið 1998. Nú er Rocky æðið mætt aftur til Húsavíkur.
Það var mikill fengur fyrir Leikfélag Húsavíkur að fá leikstjórann Eyvind Karlsson til liðs við sig. Eyvindur er sannkallaður galdramaður og fjölbreyttur bakgrunnur hans úr leiklist og tónlist er að skila sér vel í þessu verki. Ásamt Karen Erludóttur aðstoðarleikstjóra og stjórn Leikfélags Húsavíkur hefur þeim tekist að halda þétt utan um stóran hóp leikara, dansara, tónlistarfólks og annars hæfileikafólks að tjaldabaki sem skapar heilsteypta sýningu sem heldur áhorfendum föngnum frá upphafi til enda. Karen Erludóttir hefur undanfarin ár byggt upp sterkan hóp af ungu leikhúsfólki á Húsavík og handbragð þess hóps sést víða í verkinu.
Sýningin er stútfull af eftirminnilegum atriðum, mörg hver ögrandi og dálítið villt, eins og Rocky Horror á að vera. Ég er fullur aðdáunar á leikhópnum sem er óhræddur við að stíga út fyrir hinn hefðbundna þægindaramma. Það er mikil kynorka í Rocky Horror og hún skilar sér vel út í sal fyrir mikið sjálfsöryggi leikaranna. Það er ekki sjálfgefið að áhugaleikhús taki jafn djarfa afstöðu í sviðsframkomu og hér er gert, en hér er það gert af fullu öryggi allra. Dans Rocky og Janetar og rúmsenurnar eru ógleymanlegar.
Sterkur leikarahópur
Leikarahópurinn er stór og kraftmikill og skapar mörg eftirminnileg augnablik á sviðinu. Arnþór Þórsteinsson er stórkostlegur sem Frank-N-Furter og ber sýninguna að mörgu leyti uppi með karismatískri sviðsframkomu sinni og ótrúlegu sjálfsöryggi sínu í hlutverkinu.
Einar Óli Ólafsson og Bergdís Björk Brandr Jóhannsdóttir mynda sannfærandi tvíeyki sem Brad og Janet og leiða áhorfendur inn í undarlegan og villtan heim sögunnar ásamt Valgeiri Sigurðssyni sem gegnir hlutverki sögumannsins af öryggi og heldur vel utan um frásögnina.
Hjalti Karl Jónsson fer algjörlega á kostum sem Riff Raff og skapar karakter sem situr eftir, og ásamt Hrefnu Ósk Davíðsdóttur í hlutverki Magentu systur hans, skapa þau hið fullkomna systkina-dúó.
Katla Marín Þorkelsdóttir er stórkostleg í hlutverkum Kólumbíu og brúðarinnar. Hún hefur sterka sviðsorku og fyllir sviðið í hvert sinn sem hún kemur fram, sérstaklega í danssenum. Margrét Inga Sigurðardóttir fer með tvö hlutverk, Eddu og Dr. Scott og tekst vel á við bæði, og er sérstaklega mögnuð í túlkun sinni á Dr. Scott. Hörður Bjarni Bergþórsson stendur sig vel í líkamlega krefjandi hlutverki Rocky.
Transylvanísku útsendararnir, þau Daníel Máni Einarsson, Katla María Guðnadóttir, Karítas Embla Kristinsdóttir, Eggert Þórarinsson og Jenný Birna Þórisdóttir, halda uppi kraftmikilli stemningu í fjölmörgum hópatriðum sýningarinnar.

Kraftmikið tónlistarfólk og söngvarar
Hljómsveitin fer hreinlega á kostum og er einn af sterkustu þáttum sýningarinnar. Bandið er þétt og keyrir sýninguna áfram með miklum krafti með Brynjar Friðrik Pétursson tónlistarstjóra sýningarinnar á gítar, Guðnýju Margréti Eyjólfsdóttur á bassa, Axel Flóvent á hljómborð og Gunnar Illuga Sigurðsson á trommur. Hljómsveitin er óvenjulega staðsett yfir sviðsmyndinni, en það er gaman að sjá aðeins í þau, og mikið get ég ímyndað mér að verði heitt þarna upp, sérstaklega þegar fer að líða á sýninguna. Mikið hefur einnig verið lagt í sönginn, sem skilar sér vel til áhorfenda.
Sjónrænt stórvirki
Búningar og leikgervi eru stórkostleg og falla fullkomlega að þeim ögrandi og litríka heimi sem Rocky Horror krefst. Umsjón með leikgervum höfðu þau Arnrún Eva Guðmundsdóttir, Fríða Bjartey Hjaltalín, Júlía Björg Ingvarsdóttir, Margrét Ósk Friðriksdóttir, og Marta Ýr Pietrzyk, undir stjórn Aþenu Mareyjar Ingimarsdóttur og Skarphéðins Birgissonar. Búninga önnuðust þær Anna Ragnarsdóttir, Dómhildur Antonsdóttir og Guðrún Margrét Einarsdóttir, undir stjórn Helgu Sigurjónsdóttur.
Leikmynd sýningarinnar var hönnuð og smíðuð af þeim Heiðari Smára Þorvaldssyni, Kristeyju Þráinsdóttur, Brynjari Smárasyni, Anitu Ruth Lund, Kristínu Evu Kristjánsdóttur og Arnari Páli Vilhjálmssyni, undir stjórn Helgu Sveinbjörnsdóttur. Þau hafa farið í mikla vinnu við að opna siðsrýmið og er sviðið nú bæði víðara og hærra en áður, sem opnar nýja möguleika í uppsetningu sýninga í framtíðinni.
Öll hönnun í kringum verkið er metnaðarfull og má þar sérstaklega nefna leikskrána, sem brýtur ákveðið blað í hönnun leikskráa hjá Leikfélagi Húsavíkur, en hana hannaði Agnes Lilja Jóakimsdóttir. Loks langar mig að nefna ljósahönnun Hafliða Emils Barðasonar sem er metnaðarfull og krafmeiri en áður hefur sést í gamla Samkomuhúsinu á Húasvík og strobe-lýsingin styður sérstaklega vel við innkomur leikara í eftirminnilegum atriðum. Félagsmenn og stjórn Leikfélags Húsavíkur hafa unnið stórvirki með þessari uppsetningu.
Í leikskránni talar stjórnin um að markmiðið sé að skapa töfra og það tókst. Það sem skín í gegn frá fyrsta atriði og allt til loka verksins eru orkan og leikgleðin í hópnum. Ekki missa af.
– Örlygur Hnefill Örlygsson
Stjórn Leikfélags Húsavíkur

Unnur Lilja Erlingsdóttir og Katla Marín Þorkelsdóttir
Að tjaldabaki


