Síðustu daga hefur verið unnið að uppsetningu hleðslustöðva við allar íbúðir Framsýnar og Þingiðnar í Þorrasölum í Kópavogi. Stöðvarnar eru staðsettar í bílakjallara við íbúðirnar. Áður voru tvær hleðslustöðvar við tvö bílastæði, en nú hafa þær verið fjölgað í sex, þannig að ein stöð er nú við hverja íbúð stéttarfélaganna.
„Við eigum sex íbúðir í Þorrasölum og höfum verið að vinna að því að koma þessum hleðslustöðvum upp. Við viljum vera umhverfisvæn og bæta þjónustuna enn frekar. Íbúðirnar okkar eru mikið notaðar af félagsmönnum sem eiga erindi suður og þetta er því jákvæð viðbót við þá þjónustu sem við bjóðum upp á,“ segir Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar.
Gestir á vegum Framsýnar og Þingiðnar greiða ekki sérstaklega fyrir notkun stöðvanna. Með lyklum að íbúðunum fylgir sérstakur dropi sem notaður er til að opna stöðvarnar og hlaða bíla. Allar stöðvar stéttarfélaganna eru merktar sérstaklega, en tekið er fram að aðrar stöðvar í bílakjallaranum séu í einkaeigu og því óheimilt að nota þær.

