Sex mánaða inniköttur týndur úr Höfðabrekku

Snúður, sex mánaða gamall innköttur, slapp út um glugga á Höfðabrekku 29 í morgun. Hann hefur ekki sést síðan en spor eftir kött sáust síðdegis í görðum í Laugarbrekku svo líklegt er að hann sé annað hvort í Höfðabrekku eða Laugarbrekku. En fólk á svæðinu er beðið að hafa opin augun.

Hægt er að hafa samband við Dýraeftirlit Norðurþings í síma 865-3398 eða Örlyg Hnefil í síma 848-7600 ef sést til Snúðs á ferðinni.

Uppfært kl. 03:00: Snúður er fundinn. Takk fyrir alla aðstoð.