Bjartsýnishátíðin Sólarpönk verður haldin í fyrsta sinn á Íslandi um komandi helgi í Listagilinu á Akureyri. Frá þessu greinir Akureyri.net þar sem Rakel Hinriksdóttir fjallar um hátíðina og hugmyndafræðina á bak við hana.
Dagskrá hátíðarinnar er fjölbreytt og meðal þátttakenda í hátíðinni er Húsvíkingurinn Sigrún Björg SteinÞórsdóttir sem verður með sunnudansgleði á sunnudaginn klukkan 11. Ókeypis er á alla viðburð hátíðarinnar, en Sólarpönk er alþjóðleg hreyfing sem snýst um hugmyndafræði, listir og aktívisma sem leitast við að svara því hvernig sjálfbært samfélag gæti litið út.
Nánar má lesa um hátíðina í grein Rakelar á Akureyri.net.

