Skákfélagið Goðinn fékk bronsið en ekki upp um deild

Skákfélagið Goðinn vann til bronsverðlauna á Íslandsmóti skákfélaga sem fram fór um helgina í Rímaskóla í Reykjavík. A-lið Goðans varð í 3. sæti í 3. deild með 9 stig af 14 mögulegum og samtals 20,5 vinninga í hús.

3. sætið dugar ekki til að vinna sig upp í 2. deild, sem þýðir að liðið verður áfram í 3. deild næsta tímabil. B-sveit Goðans endaði í 16 sæti í 4. deild af 24 liðum, með 6 stig og 20 vinninga og var talsvert frá toppnum að þessu sinni.