Snjóflóð féll í Selskál skammt utan við Siglufjörð

Stórt snjóflóð féll í Selskál skammt utan við Siglufjörð í nótt og er það með þeim stærri sem menn muna á svæðinu. Flóðið fór yfir Siglufjarðarveg og alla leið út í sjó og var snjólagið á köflum allt að sjö metra þykkt.

Siglufjarðarvegi hafði verið lokað í gærkvöldi, frá Ketilási að Strákagöngum, rétt áður en flóðið féll. Þá var einn sveitabær á svæðinu rýmdur til öryggis.

Óvissustig vegna snjóflóðahættu er nú í gildi á Norðurlandi og sérstakt hættustig á norðanverðum Tröllaskaga vegna aðstæðna. Yfirvöld fylgjast náið með þróun mála.