Framboðslisti M-lista Samfélagsins í Norðurþingi var samþykktur á fundi stjórnar Miðflokksfélags Þingeyinga í vikunni. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá framboðinu. „Listinn er settur fram með það að markmiði að sameina öflugt og reynslumikið fólk úr ólíkum áttum samfélagsins til að vinna að hagsmunum íbúa sveitarfélagsins. Um er að ræða breiðan hóp einstaklinga úr samfélaginu, sem er skipaður óháðum einstaklingum, félagshyggjufólki og Miðflokksfólki í Norðurþingi,“ segir í tilkynningu.
Sveinbjörn Árni Lund, formaður Miðflokksfélags Þingeyinga, segir að „um sé að ræða sterkan og fjölbreyttan lista. Á listanum er fólk með víðtæka þekkingu og reynslu úr atvinnulífi og samfélagi, sem getur lagt sitt af mörkum til uppbyggingar og þróunar sveitarfélagsins,“ segir hann jafnframt. „Skipun listans endurspeglar þannig breiðan bakgrunn, reynslu og þekkingu sem mun nýtast vel við stefnumörkun og ákvarðanatöku í Norðurþingi,“ bætir hann við.
M – Lista samfélagsins skipa eftirtalin:
1. Rúnar Traustason, 40 ára, rekstarstjóri Íslandspósts og sjúkraflutningamaður HSN, Húsavík.
2. Ágúst Sigurður Óskarsson, 59 ára, Ráðgjafi og atvinnulífstengill Virk og sjúkraflutningamaður HSN, Húsavík.
3. Elín Guðmundsdóttir, 57 ára, bókari Enor ehf., Húsavík.
4. Brynjar Baldursson, 42 ára, framkvæmdastjóri Heimamanna ehf. og sjúkraflutningamaður HSN, Húsavík.
5. Hilda Rós Pálsdóttir, 43 ára, umsjónarkennari Borgarhólsskóla, Húsavík.
6. Áki Hauksson, 60 ára, framkvæmdastjóri Víkurrafs ehf., Húsavík.
7. Hallur Lund, 47 ára, tæknistjóri Kaldvík hf., Húsavík.
8. Gunnólfur Sveinsson, 57 ára, bifvélavirki Bílaleigu Húsavíkur ehf., Húsavík.
9. Alexander Gunnar Jónasson, 34 ára, vélamaður Vegagerðinni, Húsavík.
10. Helga Sigurbjörg S. Heide, 43 ára, húsmóðir og naglafræðingur, Húsavík.
11. Monika Zyvatkauskaité, 26 ára, sérfræðingur umbóta PCC Bakka, Húsavík.
12. Jónas Sævarsson, 58 ára, starfsmaður Skipaafgreiðslu Húsavíkur ehf., Húsavík
13. Svava Steingrímsdóttir, 46 ára, sjúkraliði Heilbrigðisstofnun Norðurlands, Húsavík.
14. Önundur Kristjánsson, 26 ára, sjómaður, Húsavík.
15. María Guðrún Jónsdóttir, 63 ára, ræstitæknir og verkamaður Heimamönnum ehf., Húsavík.
16. Davíð Þórólfsson, 42 ára, trésmiður Sjóferðum Arnars ehf., Húsavík.
17. Gunnar Björnsson, 60 ára, bóndi og fósturtalningamaður, Öxarfirði.
18. Guðmundur A. Hólmgeirsson, 86 ára, framkvæmdastjóri og útgerðarmaður, Húsavík.

