Aðalfundur Félags sauðfjárbænda í Suður-Þingeyjarsýslu fór fram í reiðhöllinni í Saltvík á föstudag. Helstu verkefni félagsins á árinu 2025 var hin árlega hrútasýning um haustið auk þess sem félagið tók að sér fyrst félaga á landinu að halda endurvakna árshátíð sauðfjárbænda en hún hefur ekki verið haldin um margra ára skeið. Árshátíðin var haldin á Fosshótel Húsavík þann 12. apríl en uppselt var á hana. Stjórnin er afar sátt með hvernig tókst til.
Á aðalfundinum 6. mars var besti hrúturinn fæddur 2024 verðlaunaður en í þetta skiptið var það hrúturinn Stubbur frá Skarðaborg sem sigraði, en hann var keyptur sem lamb haustið 2024 á Ingjaldsstaði hvar hann hefur heimilisfestu. Sigurður Atlason veitti viðtöku farandgripnum Skjálfanda við þetta tilefni.
Sérstakur gestur kvöldsins var hundaþjálfarinn Elísabet Gunnarsdóttir frá Ketilsstöðum sem flutti erindi um smalahunda og var með sýnikennslu í glæsilegri reiðhöll Grána í Saltvík.

