Sýningin Margslunginn einfaldleiki opnar í kvöld

Sýningin Margslunginn einfaldleiki opnar í Safnahúsinu á Húsavík klukkan átta í kvöld, en hún er samstarf Könnunarsafnsins og Menningarmiðstöðvar Þingeyinga. Þar tala saman verk tveggja merkra listamanna og vina, Tryggva Ólafssonar og Thors Vilhjálmssonar, sem báðir áttu sterka tengingu við Húsavík.

Tryggvi var einn af virtustu myndlistarmönnum þjóðarinnar og sýndi verk sín víða um heim, en Thor var meðal áhrifamestu rithöfunda landsins og hlaut meðal annars bókmenntaverðlaun Norðurlandaráðs, auk þess að fást við myndlist og teikningu. Þeir tengdust sterkum böndum í listsköpun og samræðu. Thor skrifaði fjölda texta um myndlist og fjallaði meðal annars oft um verk Tryggva, en þeir skreyttu einnig bækur hvors annars með textum og myndum.

Heiti sýningarinnar, Margslunginn einfaldleiki, er sótt í skrif Thors um list Tryggva og endurspeglar þá sérstöku nálgun sem einkenndi verk hans.

Opnunin hefst eins og áður sagði klukkan 8 í kvöld og er aðgangur ókeypis. Söngkonan Arndís Inga Árnadóttir mun ásamt Hilmari Þór bróður sínum flytja nokkur lög við opnunina, auk þess sem þeir bræður Guðmundur Andri og Örnólfur Thorssynir munu halda stutt ávörp.

About Jóhanna Ásdís Baldursdóttir

View all posts by Jóhanna Ásdís Baldursdóttir →