Fengu 4 milljón dollara fjárfestingu og stöðuleyfi á lóð Orkuveitu Húsavíkur

Skipulags- og framkvæmdaráð Norðurþings samþykkti á fundi sínum í dag að veita fyrirtækinu Syntholene Energy stöðuleyfi fyrir tímabundinn búnað á lóð Orkustöðvarinnar að Hrísmóum. Um er að ræða þrjá 20 feta gáma, starfsmannahús, sex feta tengigám og sex hráefnatunna sem fyrirhugað er að setja upp á svæðinu. Fyrir liggur samþykki stjórnar Orkuveitu Húsavíkur fyrir afnotum lóðarinnar. Þá hefur eldvarnareftirlit farið yfir málið og gerir ekki athugasemdir við að leyfið verði veitt.

Syntholene Energy hefur vakið athygli á undanförnum vikum en móðurfélag þess tryggði sér nýlega 3,8 milljóna dollara fjárfestingu sem ætlað er að styðja við þróun nýrrar aðferðar við framleiðslu á vistvænu flugeldsneyti.

Þá hefur félagið jafnframt gert viljayfirlýsingu við Icelandair um möguleg kaup á allt að 25 milljónum lítra árlega af svokölluðu rafeldsneyti (eSAF) til næstu tíu ára, ef framleiðsla og verðforsendur verða hagstæðar. Samstarfið er hluti af aukinni áherslu flugiðnaðarins á að draga úr kolefnislosun.