„Kom mér á óvart hvað fólk á Húsavík er opið fyrir nýjum hugmyndum“

Nýstárleg hugmynd er að taka á sig mynd við höfnina á Húsavík, svokallaður blár samfélagsgarður. Að baki hugmyndinni stendur Gyde Rudolph, þýsk kona sem hefur búið á Húsavík síðustu tvö ár og algjörlega fallið fyrir samfélagi og umhverfi hér. Gyde vill færa  fólkið nær hafinu á ný, enda hefur hún alltaf verið heilluð af hafinu. Í sunnudagsviðtalinu ræðir Örlygur Hnefill við Gyde um þessa áhugaverðu hugmynd.

Blár samfélagsgarður. Ljósmynd af vef Háskólans í Gautaborg (ljósmyndari Ingvar Eliasson)

„Þetta virkar á svipaðan hátt og samfélagsgarður á landi, en í stað þess að rækta í mold gerist það í sjónum,“ segir Gyde.

Gyde kom upphaflega til Íslands í gegnum meistaranám sitt í Svíþjóð sem kallast Sea and Society. „Ég fékk tækifæri til að fara í starfsnám erlendis og kom þá til Íslands. Seinna starfsnámið mitt var hjá Rannsóknasetri Háskóla Íslands á Húsavík og á meðan ég var hér varð ég eiginlega ástfangin af bænum, svo ég ákvað að vera áfram.“

Aðspurð hvað það sé sem heilli mest við Húsavík nefnir hún samspil fólks og náttúru. „Það er líka mjög áhugavert rannsóknarumhverfi hér. Og svo er Stéttin staður þar sem margt skapandi fólk hittist. Það er sérstök orka í þessum bæ.“

Hugmyndin að bláa samfélagsgarðinum kviknaði einmitt yfir kaffibolla á Stéttinni síðasta sumar. „Þegar verið var að byggja gróðurhúsið þar við hliðina sagði Hildur Halldórsdóttir mér að það ætti að verða samfélagsgarður. Þá sagði ég henni frá svipuðu verkefni í Gautaborg þar sem ég hafði búið, bláum samfélagsgarði í sjónum.“

Síðan þá hefur verkefnið smám saman tekið á sig mynd. Gyde hefur fengið styrk úr Uppbyggingarsjóði Norðurlands eystra og unnið að verkefninu með ýmsum samstarfsaðilum, meðal annars Rannsóknasetri Háskóla Íslands, Fræðasetrinu, Fab Lab, Hvalasafninu og Borgarhólsskóla.

„Það sem kom mér mest á óvart við Húsavík er hvað fólk er opið fyrir nýjum hugmyndum,“ segir hún. „Margir eru tilbúnir að leggja tíma og orku í verkefnið og það er mjög hvetjandi.“

Næstu skref eru að sækja um frekari styrki og byggja upp samstarf við aðila í Noregi, Færeyjum, Svíþjóð og Danmörku. Ef allt gengur eftir vonast Gyde til að hægt verði að setja garðinn upp í höfninni strax í haust.

„Við viljum að fólk upplifi hafið ekki bara sem eitthvað sem maður horfir á,“ segir hún að lokum, „heldur sem eitthvað sem maður getur tekið virkan þátt í.“