Tilboði Icelandair í Ísafjarðarflug hafnað

Vegagerðin hefur hafnað tilboði Icelandair um rekstur flugleiðarinnar milli Reykjavíkur og Ísafjarðar. Samningaviðræður standa þó enn yfir milli aðila um framhaldið.

Greint var frá málinu á Vísi.is og sagði Eyjólfur Ármannsson innviðaráðherra í samtali við Vísi að áfram sé stefnt að samkomulagi, þótt tilboð Icelandair hafi verið langt yfir kostnaðaráætlun. Félagið var eina flugrekstrarfélagið sem bauð í leiðina og hljóðaði tilboðið upp á 3,5 milljarða króna niðurgreiðslu á næstu fjórum árum.

Það er 2,2 milljörðum króna meira en kostnaðaráætlun Vegagerðarinnar, sem gerði ráð fyrir 1,3 milljörðum króna.

Samkvæmt Eyjólfi liggja engar nýjar tölur fyrir í viðræðunum að svo stöddu. Hann segist þó enn staðráðinn í að tryggja áframhaldandi flug til Ísafjarðar, eftir að Icelandair tilkynnti á síðasta ári að félagið hygðist hætta flugi þangað næsta haust.

Ráðherrann segir kostnaðinn skipta miklu máli, en kveðst jafnframt vona að niðurstaða náist. Hann hefur þegar rætt við Boga Nils Bogason, forstjóra Icelandair, í síma og gerir ráð fyrir að þeir fundi á næstunni.