Félagið Transatlantic Aluminum hefur undirritað viljayfirlýsingu við sveitarfélagið Norðurþing um að kanna möguleika á uppbyggingu álúrvinnsluverksmiðju á iðnaðarsvæðinu á Bakka. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Norðurþingi í dag, en sveitarfélagið hefur undanfarið verið að gera viljayfirlýsingar við þau félög sem hafa sett af stað könnun á uppbyggingu á svæðinu.
„Með þessum yfirlýsingum erum við að leggja okkar lóð á vogarskálarnar til að styðja verkefnin í samtölum þeirra við orkufyrirtæki og fjárfesta,“ segir Björn Gíslason, verkefnastjóri atvinnuuppbyggingar á Bakka. Þetta er sjötta yfirlýsingin sem sveitarfélagið hefur undirritað á síðustu 12 mánuðum.
Verkefni Transatlantic Aluminum felur í sér gerð steypuskála fyrir endurunnið ál með allt að 90.000 tonna ársframleiðslu þegar fullum afköstum er náð og er gert ráð fyrir að framleiðslan verði m.a. notuð í tækni- og flugvélaiðnaði. TAA vinnur að verkefninu í samstarfi við Almex USA sem er sérfræðifyrirtæki í vinnslu á harðáli og búnaði því tengdu.
Samkvæmt viljayfirlýsingunni munu aðilar vinna saman að frumathugunum og mati á helstu þáttum tengdu verkefninu. Stefnt er að því að viljayfirlýsingin þróist yfir í lóðar- og hafnarsamning, að undangenginni jákvæðri hagkvæmniathugun sem áætlað er að ljúki í lok ágúst 2026. Verkefnið fellur vel að stefnu grænna iðngarða á Bakka þar sem framleiðslan byggir á endurvinnslu og lágmörkun kolefnisspors.

