Um helgina verður fjölbreytt efni á Húsavík.com að vanda. Á sunnudag birtist opinskátt og áhrifamikið Sunnudagsviðtal við Tönju Ísfjörð, þar sem hún ræðir af mikilli hreinskilni um eigin reynslu, baráttu sína fyrir þolendur kynbundins ofbeldis og það hvernig samfélagið bregst of oft þeim sem stíga fram. Viðtalið er án efa það mikilvægasta sem birt hefur verið í þessum viðtalaflokki.
Við segjum einnig frá áhugaverðu STEM-verkefni á Norðurlandi eystra undir yfirskriftinni Saman erum við öflugri, þar sem markmiðið hefur verið að styðja kennara í STEM-greinum, efla faglegt starf og byggja upp tengslanet þvert á skóla og byggðir. Verkefninu lauk með vel heppnuðum menntabúðum á Húsavík þar sem kennarar unnu að hagnýtum lausnum og mótuðu eigin áætlanir til innleiðingar í kennslu.
Þá verður ítarleg umfjöllun um Artemis II, næstu mönnuðu tunglferð NASA, þar sem fjórir geimfarar munu á næstu vikum halda í sögulega ferð til tunglsins, í fyrsta sinn í yfir hálfa öld. Í þeirri umfjöllun verður sjónum sérstaklega beint að því hvaða hlutverk Íslands og Þingeyjarsýslur leika í þessu nýjasta ævintýri í geimferðum.
Ekki missa af áhugaverðum viðtölum, fréttaskýringum og vönduðu helgarefni á Húsavík.com.

