„Við erum nýtt framboð, en það er mikil reynsla í þessum hópi“

Pólitískur bakgrunnur frambjóðenda Óskalistans er nokkuð fjölbreyttur og eru nokkrir reynsluboltar í þeirra röðum, en þriðjungur frambjóðenda hefur áður boðið sig fram í sveitarstjórnarkosningum í Norðurþingi, frá því sveitarfélagið var stofnað árið 2006.

„Við erum nýtt framboð, en það er mikil reynsla í þessum hópi og það mun skipta máli í þessum kosningum og á komandi kjörtímabili. Talsvert stór hópur hefur boðið sig fram áður, bæði innan Norðurþings í öðrum flokkum og einnig í öðrum sveitarfélögum,“ segir Ómar Gunnarsson oddviti Óskalistans. Hann segir frambjóðendur hafa misjafnan pólitískan bakgrunn en það sem sameini þau öll sé mikill og einlægur metnaður fyrir byggðakjörnum og dreyfðum byggðum sveitarfélagsins Norðurþings. Ómar segir flesta frambjóðendur þeirra vera í einhverskonar einkarekstri eða í vinnu hjá einkaðilum, og því í góðum tengslum við atvinnulífið á svæðinu.

Ómar Gunnarsson, oddviti Óskalistans.

Einn af frambjóðendum Óskalistans var í framboði í síðustu sveitarstjórnarkosningum sem fram fóru árið 2022, en það er Kolbrún Valbergsdóttir sem þá sat í 5. sæti á lista VG og óháðra. Úr röðum Vinstri grænna koma einnig tveir aðrir frambjóðendur á lista Óskalistans. Silja Rún Stefánsdóttir sat í 12. sæti á lista VG í sveitarstjórnarkosningunum árið 2018 og Stefán Leifur Rögnvaldsson skipaði 6. sæti á lista VG árið 2014 og 8. sæti árið 2018.

Af fyrri framboðslistum Framsóknarflokksins má sjá tvo frambjóðendur á nýjuum framboðslista Óskalistans. Gísli Þór Briem sat í 11. sæti á lista Framsóknar árið 2018 og Guðmundur Magnússon var í 10. sæti á lista flokksins í kosningum bæði árið 2006 og 2010.

Jón Ketilsson hefur mikla reynslu af framboðum, en hann var á listum Sjálfstæðisflokksins í þrjú skipti: í 11. sæti árið 2006, 12. sæti árið 2010 og 7. sæti árið 2014. Þá sat Einar Sigurðsson á framboðslista Alþýðubandalagsins í kosningum til sveitastjórnar Raufarhafnarhrepps árið 1998.

Ljósmynd: Ottó Gunnarsson

Skoða Óskalistann á kosningavef Húsavík.com
Á kosningavef Húsavík.com má finna framboðslista Óskalista, fréttir af framboðinu, tölfræði og stefnumál á einum stað.