Fimm kúabú í Þingeyjarsýslum með úrvalsmjólk
Auðhumla svf afhenti sl. fimmtudag verðlaun til þeirra bænda sem framleiddu úrvalsmjólk á árinu 2025. Verðlaunaafhendingin fór fram á deildarfundi Auðhumlu í Norðausturdeild í Sveinbjarnargerði í Eyjafirði. Alls fengu 16 kúabú verðlaun fyrir úrvalsmjólk í deildinni og þar af 5 kúabú í Þingeyjarsýslu. Þau voru Veisa, Öxará, Lyngbrekka, Laxamýri …
