Þar sem Óskalistinn er nýtt framboð er ekki til tölfræði um gengi í fyrri kosningu. Hér er samantekt á framboðssögu núverandi frambjóðenda listans:
Einn af frambjóðendum Óskalistans var í framboði í síðustu sveitarstjórnarkosningum sem fram fóru árið 2022, en það er Kolbrún Valbergsdóttir sem þá sat í 5. sæti á lista VG og óháðra. Úr röðum Vinstri grænna koma einnig tveir aðrir frambjóðendur á lista Óskalistans. Silja Rún Stefánsdóttir sat í 12. sæti á lista VG í sveitarstjórnarkosningunum árið 2018 og Stefán Leifur Rögnvaldsson skipaði 6. sæti á lista VG árið 2014 og 8. sæti árið 2018.
Af fyrri framboðslistum Framsóknarflokksins má sjá tvo frambjóðendur á nýjuum framboðslista Óskalistans. Gísli Þór Briem sat í 11. sæti á lista Framsóknar árið 2018 og Guðmundur Magnússon var í 10. sæti á lista flokksins í kosningum bæði árið 2006 og 2010.
Þá hefur Jón Ketilsson einnig mikla reynslu af framboðum, en hann var á listum Sjálfstæðisflokksins í þrjú skipti: í 11. sæti árið 2006, 12. sæti árið 2010 og 7. sæti árið 2014.
