Hafrún segir skilið við stjórnmálin í bili

Hafrún Olgeirsdóttir oddviti Sjálfstæðisflokksins hefur beðist lausnar úr sveitarstjórn Norðurþings eftir 7 ára setu í sveitarstjórn. Hún hefur verið aðalmaður í sveitarstjórn frá árinu 2019, fyrst fyrir E-lista og síðan sem oddviti D-lista Sjálfstæðisflokksins á þessu kjörtímabili.

Hefur Hafrún meðal annars gegnt embætti formanns byggðaráðs, verið 2. varaforseti sveitarstjórnar, setið í fjölskylduráði og starfað í stjórn Menningarmiðstöðvar Þingeyinga. Hafrún hefur undanfarið ár verið í barneignarleyfi og ákvað að snúa ekki til baka þegar því lauk, en kosningar til sveitarstjórnar fara fram í maí á næsta ári.

Var ósk hennar um lausn frá störfum í sveitarstjórn Norðurþings samþykkt á fundi sveitarstjórnar sem fór fram í Orkustöðinni í gær.

Ítarlegt viðtal við Hafrúnu birtist hér á Húsavík.com um helgina, en hægt er að horfa á fund sveitarstjórnar hér að neðan.