Samfylkingarfólk í Norðurþingi fundaði um framboðsmál sín á Húsavík í gær og þar var samþykkt einróma tillaga stjórnar flokksfélagsins um að viðhöfð verði uppstilling sem aðferð við val á framboðslista Samfylkingarinnar í Norðurþingi fyrir sveitastjórnarkosningarnar í maí.
Í tilkynningu sem Húsavík.com barst frá stjórn flokksins í Norðurþingi að fundi loknum eru áhugasamir frambjóðendur hvattir til að setja sig í samband við stjórn gegnum Facebook síðu eða með tölvupósti. „Þegar uppstillingarnefndin hefur lokið störfum verður boðað til félagsfundar þar sem listinn verður borinn upp til samþykktar,“ segir í tilkynningu Samfylkinarinnar.

