Húsvíkingurinn Patrekur Gunnlaugsson ráðinn yfirþjálfari Arena

Arena Gaming hefur, í samstarfi við rafíþróttadeildir Breiðabliks, HK, FH og Fylkis, ráðið Húsvíkinginn Patrek Gunnlaugsson í starf yfirþjálfara.

Í samtali við Húsavík.com segir Patrekur tilfinninguna að taka við þessu starfi ótrúlega góða. „Ég hef lengi viljað stækka og bæta rafíþróttastarfið hér á Íslandi, og Arena er einfaldlega frábær vettvangur fyrir það eða í rauninni bara besti vettvangurinn,“ segir Patrekur.

Í tilkynningu frá Arena Gaming kemur fram að Patrekur muni vinna ásamt öflugu teymi aðstoðarþjálfara við að byggja upp metnaðarfullt rafíþróttastarf og færa því nýjar áherslur.

Patrekur býr yfir langri reynslu í rafíþróttum, bæði sem keppandi og þjálfari. Hann var um árabil meðal fremstu spilara landsins í Counter-Strike undir nickinu Pat og hefur síðustu ár þjálfað börn og unglinga hjá FH og Fylki.

„Ég hef spilað tölvuleiki frá barnsaldri og byrjaði að keppa mjög ungur, til dæmis var ég aðeins 8 ára þegar ég byrjaði að spila Counter Strike. Fyrsta lanmótið mitt var í Háskólanum í Reykjavík sumarið 2010 þegar ég var 14 ára. Ég fór svo að keppa fyrir alvöru 2018 með húsvíska liðinu Konvicted sem varð síðar ÍBV. Þar spilaði ég með Bergi Jónmundssyni, Sigurði Unnari Haukssyni, Eyþóri Traustasyni, Svavari Cesar Hjaltested, Pétri Helga Friðrikssyni og Þorsteini Óskarssyni og kynntist þá almennilegu keppnisumhverfi í rafíþróttum,“ segir Patrekur.

Þá hefur Patrekur einnig komið að landsliðsþjálfun og er meðal annars þjálfari kvennalandsliðsins í Counter-Strike. Patrekur er með BSc-gráðu í sálfræði frá Háskólinn í Reykjavík.