7 ára afmælisfögnuður á Gamla Bauk í kvöld

Gamli Baukur fagnar í kvöld sjö ára tímamótum frá því þau Kristján Örn og Kristveig Halla tóku við rekstrinum, 1. mars fyrir nákvæmlega sjö árum.

Af því tilefni verður boðið upp á sérstakan grillseðil og að loknum mat tekur Guðni Braga við keflinu og stýrir karaókí fram eftir kvöldi.

Eigendur segja tilefnið kærkomið til að fagna áfanganum með góðum mat, söng og stemningu og bjóða gesti hjartanlega velkomna til að taka þátt í afmælisgleðinni.