Miklar endurbætur eru í gangi þessa dagana í listasal Menningarmiðstöðvar Þingeyinga í Safnahúsinu á Húsavík. Búið er að fjarlægja gólfdúk sem hefur verið á gólfum þar um áratuga skeið og verður gólfið í framhaldi flotað og lakkað. Nýlega er búið að hvítta loft og verður yfirbragð salarins allt mun léttara að framkvæmdum loknum. „Salurinn mun fá yfirbragð nútíma listasalar og ég hef sterkar væntingar til að verkið klárist síðari hluta næstu viku, enda öflugir menn að störfum,“ segir Árni Pétur Hilmarsson, safnstjóri.
Stutt er síðan ráðist var í endurbætur á lýsingu í Sjómannasafninu og þá hefur á síðasta ári verið útbúið svið fyrir minni viðburði um borð í Hrafninum í miðju Sjóminjasafnsins.
„Við viljum bæta og efla þetta hús samfélagsins á alla vegu og það hefur verið gaman að sjá fjölgun gesta hér á síðasta ári,“ segir Árni.

