Hildur Halldórsdóttir hefur verið ráðin forstöðumaður Þekkingarnets Þingeyinga. Hildur er menntuð í sál- og kennslufræðum frá HÍ og hefur yfir áratugs reynslu á sviði hugmyndaþróunar, markaðssetningar og stefnumótunar. Frá árinu 2021 hefur Hildur verið verkefnastjóri í menningarmálum hjá SSNE, auk þess að sinna ráðgjöf við frumkvöðla og fyrirtæki og halda utan um viðburði og kynningarstarf hjá samtökunum.
Hildur er uppalin á Vopnafirði og er ættuð þaðan í móðurætt og í Núpasveit í föðurætt. Jafnframt er hún með sterka tengingu í Suður-Þingeyjarsýsluna og til Akureyrar þar sem hún var í menntaskóla og hluti nánustu fjölskyldu hennar býr. Hún hefur meðal annars starfað hjá upplýsingahönnunarstofunni Kolofon og hjá Omnom súkkulaðigerð þar sem hún gegndi margvíslegum stjórnunarhlutverkum. Hún kemur því með mikla og fjölbreytta reynslu inn í þetta starf.
Með metnað og skapandi orku að vopni
„Það er auðvitað mikill heiður að vera treyst fyrir því öfluga og reynslumikla teymi sem skipar Þekkingarnet Þingeyinga. Hér starfar einstakur hópur með mikla faglega breidd og er ég virkilega spennt fyrir því að móta áherslur næstur ára með þeim. Það er gríðarlega spennandi að fá að taka þátt í eflingu innviða samfélagsins í gegnum háskólaþjónustuna, rannsóknir og símenntun, en ekki síður í gegnum Hraðið miðstöð nýsköpunar sem hefur síðustu þrjú ár skapað viðburði til að styðja við núverandi og verðandi frumkvöðla, atvinnulífið og verðmætasköpun í heimabyggð. Svo er ekki hægt að sleppa því að minnast á þá dýrmætu vinnuklasauppbyggingu og -menningu sem Þekkingarnetið hefur verið í forsvari fyrir á Stéttinni Húsavík og Kistunni í Langanesbyggð. Ég get ekki sagt annað en að ég hlakki til að dýfa mér í verkefnin með metnað og skapandi orku að vopni.“ segir Hildur.

Þekkingarnet Þingeyinga var stofnað árið 2003 og hefur gegnt lykilhlutverki í uppbyggingu háskólaþjónustu, símenntunar og nýsköpunar á svæðinu allt frá upphafi. Óli Halldórsson gegndi starfi forstöðumanns frá stofnun þar til hann fór til nýrra starfa hjá menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðuneytinu í lok síðasta árs, en frá þeim tíma hefur Lilja Berglind Rögnvaldsdóttir sinnt starfi forstöðumanns. Hildur tekur við starfinu í apríl.
Þekkingarnetið þjónar lykilhlutverki í samfélaginu
Aðspurð um mikilvægi Þekkingarnetsins í samfélaginu segir Hildur það þjóna lykilhlutverki í eflingu menntunar, nýsköpunar og rannsókna í héraði. „Háskólanámsþjónustan gerir fólki kleift að sinna námi innan heimabyggðar sem er gríðarlegt hagsmunamál í tengslum við búsetuval. Símenntunarsviðið heldur fjölbreytt námskeið og fræðslu, bæði sértæk og almenn, t.d. eru framundan námskeið sem eru sérstaklega hönnuð fyrir starfsfólk HSN, en einnig opin námskeið fyrir þau sem langar að læra á stafræna saumavél. Íslenskunámskeiðin eru jafnframt mikilvæg fyrir okkur og virkni íbúa sem koma erlendis frá, þar hefur starfsfólk Þekkingarnetsins hannað og farið fjölbreyttar leiðir til að efla færni fólks, t.d. kennt íslensku í gegnum ukulele námskeið, kennt inn í fyrirtækjum á miðjum vinnudegi o.s.frv. FabLab tæknismiðjan stuðlar að tækni- og nýsköpunarfærni nemenda sem eru á öllum aldri, ætli aldursbilið sé ekki frá 8 ára og upp í 70 ára á námskeiðunum sem eru í gangi í núna, ég er einmitt á einu slíku. Svo eru það vinnuklasarnir, aðstaðan fyrir frumkvöðla, fyrirtæki og óstaðbundin störf á starfssvæðinu, gríðarlega mikilvægt að geta boðið upp á aðlaðandi vinnuaðstöðu. Hraðið miðstöð nýsköpunar stendur svo að viðburðum sem kveikja í hugmyndaflugi fólks,“ segir Hildur.
Hildur segist afar spennt að ganga til liðs við Þekkingarnet Þingeyinga, enda standi stofnunin á ákveðnum tímamótum. „Það hefur verið mikil og hröð uppbygging síðustu ár þar sem mikið kapp hefur verið lagt við að móta og koma af stað vinnuklösum á svæðinu til að efla tengsl fyrirtækja, frumkvöðla, námsmanna og stofnana. Á sama tíma hefur starfsfólk stofnunarinnar komið á legg FabLab og miðstöð nýsköpunar með tilheyrandi viðburðarhaldi fyrir frumkvöðla og fyrirtæki á svæðinu. Algjörlega mögnuð starfsemi sem samfélagið hefur tekið fagnandi. Ég hlakka til að halda áfram að byggja upp þetta vistkerfi og skapa ný tækifæri fyrir fólk og fyrirtæki á svæðinu. Þetta er skemmtilegur vinnustaður, staður þar sem hugmyndir verða að veruleika, oftast með gleði og dálítilli ævintýramennsku að vopni og ég sé ekki ástæðu til að breyta því heldur einmitt nýta það sem hreyfiafl út í samfélagið.“
Húsavík.com óskar Hildi og fjölskyldu til hamingju og óskar henni velfarnaðar á nýjum vettvangi á komandi árum.


