Veikindaréttur færist á höfuðborgarsvæðið

Samhliða því að störf hins opinbera færast í auknum mæli á höfuðborgarsvæðið breikkar bilið milli opinberra starfsmanna og starfsfólks á hinum almenna vinnumarkaði hvað varðar veikindarétt. Ný greining Viðskiptaráðs Íslands varpar ljósi á verulegan mun á réttindum og fjarvistum milli markaða og þann kostnað sem því fylgir. Samkvæmt greiningunni …

Slökkvilið Norðurþings æfði í sýndarveruleika

Slökkvilið Norðurþings fékk góða gesti í heimsókn um helgina þegar fulltrúar frá Brunamálastofnun, Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, Slökkviliði Höfuðborgarsvæðisins og Brunavörnum Suðurnesja stóðu fyrir þjálfun í sýndarveruleika á Húasvík. Æft var í hugbúnaði sem nefnist Flaim Trainer en með honum er hægt að setja slökkviliðsmenn í margvíslegar aðstæður þar sem …

Þjófar náðust á mynd að stela úr dósasöfnun Björgunarsveitarinnar Garðars

Stjórn björgunarsveitarinnar Garðars hefur kært til lögreglu mál sem varðar þjófnað úr söfnunargámum sveitarinnar, eftir að einstaklingar sáust taka dósapoka úr gámum hennar. Ábending um grunsamlega háttsemi við gámana barst nýverið til stjórnar Garðars og fékkst ábendingin staðfesting þegar skoðaðar voru upptökur úr öryggismyndavélum í nærliggjandi verslun. Samkvæmt upplýsingum …

Þrek og tár: „Hvað er svo sem varið í það, að lifa í eilífri andskotans lognmollu?“

Hlýlegt er að Breiðumýri eins og endranær, þegar frumsýningargestir fara að tínast inn. Salurinn er í sinni hefðbundnu mynd, sem huggulegt kaffihús þar sem kveikt er á kertum á hverju borði og liprir aðstoðarmenn Kvenfélagsins skauta á milli borða og taka pantanir fyrir vöfflum og molakaffi. Hér hefur Leikdeild …

Bolludagur á bæjarskrifstofunum árið 1989

Í dag er bolludagurinn og af því tilefni birti Héraðsskjalasafn Þingeyinga nokkrar vel valdar myndir úr ljósmyndasafninu frá bolludegi á kaffistofunni á bæjarskrifstofunni á Húasvík árið 1989. Þó liðnir séu nærri fjórir áratugir má sjá kunnugleg andlit sem enn starfa í stjórnsýsluhúsi sveitarfélagsins, meðal annars þau Kidda Óskars og …